Ég hef á Alþingi mælt í þriðja sinn fyrir lyklafrumvarpi en slík frumvörp hafa verið lögð fram a.m.k. sjö sinnum á undanförnum árum. Allir þingmenn Miðflokksins standa að baki frumvarpinu. Lyklafrumvarpið miðar að því að reisa vörn í þágu neytenda á íbúðalánamarkaði og er teflt fram sem einu af forgangsmálum Miðflokksins á Alþingi. Frumvarpið er lagt fram að tilstuðlan Hagsmunasamtaka heimilanna.
Verja þarf heimilin
Nauðsynlegt er að lögfesta úrræði sem tryggi eigendum fasteigna sem lenda í greiðsluvanda nýja lausn. Fyrirbyggja þarf að aldrei oftar verði gerð önnur eins aðför að fjölskyldum og átti sér stað eftir hrunið 2008.
Fjölmargar fjölskyldur búa ýmist við stórfelldan samdrátt í tekjum eða atvinnuleysi. Þetta hefur alvarlegar afleiðingar fyrir greiðslugetu þegar kemur að afborgunum af húsnæðislánum. Í ljósi aðstæðna á vinnumarkaði vegna veirufaraldursins eru nú síðustu forvöð að reisa varnir í þágu heimilanna. Ein slík vörn er lyklafrumvarpið sem tryggir fólki þann rétt, sé örvænt um að önnur úrræði skili árangri, að skila lyklunum og ganga út án eftirmála.
Reynsla þúsundanna
Tíu til fimmtán þúsund fjölskyldur voru hraktar af heimilum sínum og reknar út á götu. Foreldrar máttu leiða börnin sér við hönd út af heimilum sínum tugþúsundum saman, rétt eins og hér hefðu átt sér stað stórfelld styrjaldarógn eða náttúruhamfarir. Þrjú þúsund manns hafa verið gerð gjaldþrota frá hruni. Fjöldi fjárnáma er á annað hundruð þúsunda. Fólk mátti þola miskunnarlausar aðfarir í innheimtu. Fyrirtæki án starfsleyfis, ótíndir handrukkarar, gengu hart að fólki fyrir utan öll jakkafötin. Stjórnvöld þess tíma létu sér fátt um finnast. Þrátt fyrir þetta hefur verið fátt um varnir í þágu heimilanna. Sinnuleysið sem blasti við fólki eftir hrun og skeytingarleysi um hag heimila og fjölskyldna var naumast fallið til að efla traust á Alþingi og stjórnvöldum. Slík framkoma við fjölskyldur og heimili má ekki endurtaka sig.
Lyklunum skilað
Með lyklafrumvarpinu er farin ný leið með hliðsjón af nýlegri lagaþróun. Glati samningur um fasteignalán veðtryggingu í fasteign í kjölfar nauðungarsölu teljast eftirstöðvar lánsins fallnar niður gagnvart neytanda. Gildir það sama eftir því sem við á um önnur lögbundin úrræði vegna skuldaskila fasteignalána til neytenda, svo sem gjaldþrotaskipti, nauðasamninga eða greiðsluaðlögun.
Með frumvarpinu er gerð tillaga sem getur haft mikla þýðingu fyrir neytendur í greiðsluerfiðleikum sem leiða til þess að þeir missa húsnæði sitt á nauðungarsölu. Nú er gerð sú krafa í lögum um fasteignalán til neytenda, að bjóða verði önnur úrræði áður en krafist er nauðungarsölu. Þá er líklegt að allt annað sé fullreynt. Gera má ráð fyrir, að þá liggi fyrir það mat lánveitanda að neytandi hafi ekki fyrirsjáanlega greiðslugetu til að standa undir þeim skuldbindingum sem á húsnæði hans hvíla. Er þá eðlilegt að eftirstandandi veðskuldir falli niður í kjölfar nauðungarsölu á fasteign neytanda.
Nýtt úrræði
Lagt er til að lögfest verði að kröfusambandi kröfuhafa og skuldara ljúki með öðrum hætti en upphaflega er að stefnt. Kröfuhafa samkvæmt samningi um fasteignalán, sem sé tryggt með veði í hinni keyptu fasteign, verði gert að samþykkja að afhending umræddrar eignar í sínar hendur teljist fullnaðargreiðsla af hálfu skuldara. Ekki er gert ráð fyrir að á þetta reyni nema í neyð, þ.e. þegar greiðslufall hefur orðið af hálfu skuldara og lögbundinn réttur kröfuhafa til að ganga að eigninni er orðinn virkur. Sambærileg úrræði eru þekkt í ýmsum löndum.
Áríðandi mál
Markmið frumvarpsins er að stuðla að vandaðri lánastarfsemi með því að færa skuldurum að fasteignalánum í hendur þann möguleika að láta af hendi hina veðsettu fasteign að baki láninu og ganga skuldlausir frá borði ef engin önnur úræði finnast. Frumvarpið er mikilvægur liður í því að dreifa áhættu í fasteignalánaviðskiptum. Um leið er innlend lánastarfsemi færð úr því horfi að áhætta sé einhliða á hendi lántaka. Áhætta er jöfnuð milli aðila og ætti það að hvetja til vandaðri lánastarfsemi og upplýsingagjafar til neytenda. Sé örvænt um að önnur úrræði dugi, þar á meðal samningaleið, á fólk þann rétt að skila lyklunum og ganga út. Lyklafrumvarpið þolir ekki bið.
Höfundur er alþingismaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.