Er ekki bara best að kjósa Samherja?

Álfheiður Eymarsdóttir og Gunnar Ingiberg Guðmundsson segja Pírata krefjast þess að róttækar breytingar verði gerðar í sjávarútvegi með nýju auðlindaákvæði í stjórnarskrá.

Álfheiður Eymarsdóttir og Gunnar Ingiberg Guðmundsson
Álfheiður Eymarsdóttir og Gunnar Ingiberg Guðmundsson
Auglýsing

Það er komið að því, nú gengur íslenskur almenn­ingur hnar­reistur og spengi­legur til kosn­inga. Raunar er fólki svo mikið í mun um að koma vilja sínum í kjör­kass­ann að atkvæði utan kjör­fundar Íslands­metið frá 2017 er því fall­ið.

Þá er vert að rifja upp kjör­tíma­bilið í grófum drátt­um. Það hófst á því að Vinstri græn, þrátt fyrir ítrekuð lof­orð um hið gagn­stæða, köst­uðu sér í fang Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar. Eftir tölu­verða mál­efna­þurrð framan af, fóru sígildar hug­myndir að sveima um sali Alþing­is. Mál eins og var­an­leg úthlutun mak­ríls til örfárra for­rétt­indapésa. Enda höfðu stórar útgerðir stefnt íslenska rík­inu fyrir úthlut­un­ina á þessum tak­mörk­uðu gæð­um. Málið féll síðan niður af þeirra und­ir­lagi, það sem hefði þurft til að koma í veg fyrir að það ætti sér stað til að byrja með, var að breyta lög­un­um.

Í öllum þeim kosn­ingum til Alþingis sem á undan hafa gengið hefur stærsta mál þjóð­ar­innar fallið milli stafs og bryggju, eign­ar­hald á kvót­anum er því enn þá sam­kvæmt öllum hægri­st­jórnum frá hruni í höndum réttra aðila.

Auglýsing

Þær rík­is­stjórnir inni­halda Sjálf­stæð­is­flokk­inn, Fram­sókn­ar­flokk­inn, Vinstri græn og Við­reisn. Um það verður ekki deilt. Samt sýna nýlegar kann­anir að aðeins 14% þjóð­ar­innar eru ánægð með núver­andi útfærslu kvóta­kerf­is­ins og að 70% þjóð­ar­innar séu hlið­holl breyt­ingum í sjáv­ar­út­vegi.

Íslenska stjórn­ar­skráin er ófrá­víkj­an­leg krafa til þess að Píratar gangi í stjórn­ar­sam­starf með nokkrum flokki, rót­tækar breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi er krafa númer tvö. Auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá er rót­tæk­asta breyt­ing á Íslandi frá stofnun lýð­veld­is­ins. Á því stranda allar til­raunir til þess að koma vilja þjóð­ar­innar fram. Það er minn­is­vert þegar starfs­menn sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytis Krist­ján Þórs Júl­í­us­sonar afmáðu veggjakrot í bak­garði sínum í væni­sjúkum til­raunum til að breyta sög­unni.

Núna er rekið mál fyrir hér­aðs­dómi þar sem kump­án­legur lands­faðir vorrar þjóðar situr fyrir ósann­gjörnum og nær­gön­gulum spurn­ingum um smá­vegis mis­tök í Afr­íku. Ætli frá­far­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hafi slegið á lín­una til hans aftur til að stappa í hann stál­inu?

Við Píratar höfum ekki fengið tæki­færi. Við gerum okkur grein fyrir því að trú­verð­ug­leika tekur ára­tug að byggja og einn rík­i­s­tjórn­ar­samn­ing að eyða. Vægi okkar í samn­ingum er í beinu hlut­falli við nið­ur­stöðu kosn­inga.

Atkvæði greitt okkur er atkvæði til nýs auð­linda­á­kvæð­is.

Atkvæði greitt okkur er atkvæði til sann­gjarna breyt­inga í sjáv­ar­út­vegi.

Atkvæði greitt okkur er atkvæði til lýð­ræðis - ekki kjaftæðis

Atkvæði greitt okkur er atkvæði gegn áfram­hald­andi ægi­valdi Sam­herja.

Eða er kannski bara best að kjósa Sam­herja?

Álf­heiður Eymars­dóttir er odd­viti Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi og Gunnar Ingi­berg Guð­munds­son skipar annað sæti á lista Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar