Hvað getur Reykjavíkurborg gert í orkuskiptum?

Flokkur fólksins hefur lagt fram tvær tillögur í borgarstjórn um að Reykjavíkurborg setji sér metnaðarfulla stefnu til að flýta fyrir orkuskiptum á Íslandi, skrifar oddviti flokksins í borginni, Kolbrún Baldursdóttir.

Auglýsing

Flokkur fólks­ins hefur lagt fram tvær til­lögur í borg­ar­stjórn um að Reykja­vík­ur­borg setji sér metn­að­ar­fulla stefnu til að flýta fyrir orku­skiptum á Íslandi. Orku­skipti eru einna mik­il­væg­asta aðgerðin til að Ísland nái mark­miðum sínum í loft­lags­málum sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Til­lögur Flokks fólks­ins eru tví­þætt­ar. Ann­ars vegar snúa þær að því að í útboðum Reykja­vík­ur­borgar á þjón­ustu leigu­bíla og bíla­leigu­bíla verði miðað við að bif­reiðar verði að vera umhverf­is­væn­ar. Þar er mik­il­vægt að strax séu sett skýr fyr­ir­mæli um að breyt­ingin taki gildi innan tveggja ára þannig að þeir sem bjóða í slíka þjón­ustu fyrir Reykja­vík­ur­borg hafi tíma til að upp­færa sinn bíla­flota. Áréttað er að hér er ekki átt við aðkeyptan akstur stærri flutn­inga­bíla eða sér­hæfðra öku­tækja eins og ferða­þjón­ustu fatl­aða, strætó, götu­sópa o.s.frv. þar sem umhverf­is­væn úrræði eru tæp­ast til stað­ar.

Hinn til­lagan snýr að því að stofn­anir og fyr­ir­tæki í eigu Reykja­vík­ur­borgar skrifi undir Hreinn 2 og 3. Stofn­anir og fyr­ir­tæki Reykja­vík­ur­borg­ar, sem geta notað umhverf­is­vænar bif­reið­ar, ættu að skrifa undir þessa yfir­lýs­ingu. Í henni kæmi fram að nýskráðir bílar yrðu að vera umhverf­is­væn­ir. Miða ætti við að allar bif­reiðar hjá við­kom­andi stofnun eða fyr­ir­tæki verði umhverf­is­vænar árið 2025, verði því komið við. Und­ir­ritun slíkrar yfir­lýs­ingar myndi tryggja að nýjar bif­reiðar verði ekki keyptar nema að þær standi undir því að vera umhverf­is­væn­ar. Skila­boð Reykja­vík­ur­borgar væru hér skýr. Með þessu væru gefin nokkur ár til að skipta út þeim bif­reiðum sem þegar hafa verið keyptar og óhag­kvæmt væri að skipta strax út.

Auglýsing

Mik­il­vægt er að Reykja­vík­ur­borg sýni árvekni, frum­kvæði og fram­sýni umhverf­is­mál­um. Þar á borgin að vera í far­ar­broddi.

Í bar­áttu okkar gegn umhverf­is­mengun skiptir allt máli og drop­inn holar stein­inn.

Höf­undur er odd­viti Flokks fólks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar