Kaupmáttaraukning í gegnum djúpa kreppu

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifar um þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna.

Auglýsing

Und­an­farið hafa borist tíð­indi af því að kaup­máttur launa taki nú að drag­ast saman og að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hafi dreg­ist saman á öðrum árs­fjórð­ungi 2022. Við fyrstu sýn er freist­andi að draga þá ályktun að um óheilla­þróun sé að ræða þar sem lands­menn beri skarðan hlut frá borði en slíkar álykt­anir krefj­ast þess að horft sé einnig til und­ir­liggj­andi efna­hags­þró­unar og yfir lengri tíma­bil. Þetta er ekki síst mik­il­vægt þar sem senn lýkur gild­is­tíma kjara­samn­inga og kjara­við­ræður fara í hönd. Það má færa sterk rök fyrir því að heppi­leg­ast og sann­gjarn­ast sé að meta kaup­mátt­ar­þróun yfir lengri tíma, t.d. út frá gild­is­tíma lífs­kjara­samn­ings. 

Kjara­við­ræður snú­ast um lífs­kjör fólks og jákvæða þróun sam­fé­lags­ins. Í kjara­samn­ingum er eitt meg­in­mark­mið allra samn­ings­að­ila að auka kaup­mátt og það hefur tek­ist með óyggj­andi hætti. Ann­ars vegar hefur kaup­máttur launa auk­ist um 7% frá gild­is­töku lífs­kjara­samn­ings­ins og það þrátt fyrir að efna­hags­um­svif hafi dreg­ist saman um 5% á mann á tíma­bil­inu vegna heims­far­ald­urs­ins.  

Hins vegar hefur þróun kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann er enn hag­felld­ari en frá upp­hafi árs 2019 hefur kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna auk­ist um heil 13%. Horft lengra aftur í tím­ann er þró­unin enn hag­felld­ari, frá 2016 hefur kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna auk­ist um 20%. Á síð­ustu tíu árum hefur kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna auk­ist um 39% að með­al­tali.

Á sama tíma hefur kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á Norð­ur­löndum auk­ist um 9-20%.  Á annan kvarða lagðan með vísan til nýlegrar skýrslu Katrínar Ólafs­dóttur fyrir Þjóð­hags­ráð eru öfgarnar enn meiri: „Ef við horfum ein­göngu á tíma­bilið frá 2012 þá er kaup­mátt­ar­aukn­ing áNorð­ur­lönd­unum á bil­inu 2-10% sam­an­borið við 57% á Ísland­i.“

Auglýsing
Það sem er líka vitn­is­burður um árangur síð­ustu ára er að kaup­máttur allra tekju­tí­unda jókst á síð­asta ári og sömu sögu er að segja um þró­un­ina 2018-2021, ef lægsta tekju­tí­undin er und­an­skil­inn en í þeim hópi eru mjög lágar ráð­stöf­un­ar­tekjur (37 þús. kr. á mán­uð­i), sem ætla má að séu að mestu náms­menn sem treysta á sumar og hluta­störf. Lík­ast til lenti sá hópur sér­stak­lega illa í sam­komu- og ferða­tak­mörk­unum en hafa komið af krafti til baka á yfir­stand­andi ári. Lík­lega er því um tíma­bundið ástand að ræða en fylgj­ast þarf mjög vel með þróun þessa hóps næstu miss­eri 

Sagan end­ur­tekur sig. Hag­saga Íslands sýnir með óyggj­andi hætti að verð­bólga dregur úr kaup­mætti launa. Um það þarf ekki að deila. Það er meg­in­verk­efni aðila vinnu­mark­aðar að skapa skil­yrði fyrir lækk­andi verð­bólgu til að tryggja að sam­dráttur í kaup­mætti verði skamm­vinnur svo sækja megi fram síð­ar. Á verð­bólgu tapa all­ir. 

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar