Krabbameinsskimun hinna fáu

Læknanemi og frambjóðandi Samfylkingarinnar skrifar um mikilvægi þess að efla krabbameinsskimanir hérlendis.

Auglýsing

Í aðdrag­anda kosn­inga tala ýmsir flokkar um for­varnir í tengslum við heil­brigð­is­kerfið og heilsu þjóð­ar­inn­ar. Ein slík for­vörn er skimun fyrir krabba­meinum en nokkrar slíkar skimanir hafa sýnt sig að beri árangur þegar kemur að því að bjarga manns­lífum og draga úr óþarfa kostn­aði og þján­ingu vegna meins sem grein­ist seint.

Sam­kvæmt tölum frá Krabba­meins­fé­lag­inu hefur yfir 450 íslenskum konum verið forðað frá dauða vegna leg­hálskrabba­meins á árunum 1972-2020 og því er mik­il­vægt að fyr­ir­komu­lagi leg­háls­skim­ana hér á landi verði komið í lag og konur haldi áfram að nýta þær mik­il­vægu skiman­ir.

Önnur slík skimun er skimun fyrir krabba­meini í ristli og enda­þarmi sem er annað algeng­asta krabba­meinið á Íslandi og er einnig það krabba­mein sem dregur næst­flesta til dauða á eftir lungna­krabba­meini. Engin skipu­lögð skimun er til staðar á Íslandi fyrir þessu krabba­meini en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum hefur verið hafin lýð­grunduð skimun á ristil- og enda­þarmskrabba­meini enda hefur verið sýnt fram á að slík skimun dregur úr dán­ar­tíðni af völdum sjúk­dóms­ins. Áætlað er að á Íslandi geti slík skimun komið í veg fyrir að minnsta kosti 6 dauðs­föll af þeim 28 á ári sem verða af völdum sjúk­dóms­ins meðal fólks á skimun­ar­aldri.

Auglýsing

Eins og við skimun fyrir leg­hálskrabba­meini er hægt að greina krabba­mein í ristli og enda­þarmi á for­stigi - áður en það verður að krabba­meini. Þetta er hægt að gera með ristil­speglun en þá er unnt að með­höndla for­stigið með því að fjar­lægja það í sömu aðgerð og ski­mað er fyrir því. Einnig er hægt að skima fyrir krabba­mein­inu með svo­kall­aðri FIT-skim­un. Slík skimun miðar að því að finna ein­kenna­laus krabba­mein á lægri og lækn­an­legri stig­um. Tugum millj­óna hefur verið varið í und­ir­bún­ing á þeirri skimun hér­lendis en ekk­ert orðið úr henni.

Á hinum Norð­ur­löndum og í öðrum sam­an­burð­ar­löndum er mis­mun­andi hvaða aðferð er not­ast við - en skipu­lögð skimun er hafin í flestum löndum Evr­ópu. Fagráð um skimanir fyrir krabba­meinum á Íslandi hefur mælt með að ein­stak­lingum sem eru á 51. ald­ursári verði boðin ristil­speglun sem frum­skimun en ann­ars val um að þiggja FIT próf einu sinni.

Í dag er engin lýð­grunduð skimun til staðar á Íslandi þrátt fyrir aug­ljósan ávinn­ing slíkrar skimun­ar. Þess í stað er til staðar óskipu­lögð leit þar sem ein­stak­lingar sem upp­lýstir eru um skimun­ar­mögu­leika og hafa til þess fjár­hags­lega burði mæta sjálfir í ristil­spegl­un, yfir­leitt á einka­stof­um. Þetta fyr­ir­komu­lag ýtir undir heilsu­fars­legan ójöfnuð þar sem val­inn hópur fer óþarf­lega oft í skimun á meðan meg­in­þorri fólks, og tals­verður hluti sem gæti haft gagn af skimun­inni, mætir ekki.

Í kosn­inga­stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Alþing­is­kosn­ingar 25. sept­em­ber 2021 er lögð áhersla á að koma skimunum á Íslandi í skikk­an­legt horf. Þetta getum við aðeins gert ef við fáum til þess umboð í nýrri rík­is­stjórn. Sú sem nú situr hefur haft tæki­færi til þess en ekki gripið það.

Höf­undur er nemi á 6. ári í lækn­is­fræði og skipar 5. sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar