Vangaveltur um staðsetningu Listaháskólans (LHÍ) hafa staðið með hléum í áratugi og á þeim tíma hefur LHÍ þurft að greiða amk einn milljarð í aukakostnað eingöngu vegna þess að húsnæði skólans er dreift á fjóra staði í Reykjavík. Hér mun ég færa fram rök fyrir því af hverju LHÍ ætti að vera í Vatnsmýrinni í grennd við hina háskólana og Landspítalann.
- Er klókt að spara aurana en kasta krónunum: Þar sem listir, raunvísindi og hugvísindi koma saman hefur raunin orðið óvenju skapandi umhverfi með hugmyndaauðgi sem ekki á sér líka. Ein af forsendum framfara og nýsköpunar á sviði lista og vísinda er virkt og stöðugt samtal milli ólíkra fagsviða. Það samtal verður ekki frjótt né gefur af sér nýjar hugmyndir og lausnir nema í mikilli nálægð og samvinnu. Fyrirtæki sem spretta uppúr svona umhverfi geta orðið verðmætari en heildarbyggingarkostnaður nýs listaháskóla.
- Deilihagkerfið: Sérhæfður tækjabúnaður hvers háskóla nýtist miklu betur ef fleiri aðilar úr öðrum háskólum fá aðgengi að honum líka. Til dæmis nýtast smíðaverkstæði, efnistækni, myndgreiningar, laserskerar og 3D málm-, koltrefja-, og plastprentarar öllum sviðum. Þetta er bara örstutt upptalning á samnýtingarmöguleikum milli háskólanna.
Auglýsing
- Hönnun gerir hugvit sýnilegt: Hönnun er forsenda flestra gagnlegra hluta. Listir og hönnun eiga stóran þátt í velgengni og markaðssetningu hátækniafurða eins og snjallsímanna sem við notum dags daglega. Enginn þarf heldur að efast um að samvinna við hönnun, tækniuppsetningu og notkun sjúkrastofa á spítala er þverfaglegt verkefni þar sem arkitektar, hönnuðir, iðjuþjálfar, eðlisfræðingar, verkfræðingar, læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfar, líffræðingar ásamt fleirum þurfa að koma að til að tryggja góðan aðbúnað starfsfólks og sjúklinga og eðlilegan rekstur.
- Listaháskólinn - lykill að nýsköpunarlandinu Íslandi: Nú þegar hefur LHÍ komið að fjölmörgum áhugaverðum verkefnum á öllum sviðum hug-, félags, heilbrigðis- og raunvísinda. Aðgengi við komu á fæðingardeild Landspítala, hugmyndir um fatnað starfsfólks spítalana, aðbúnaður starfsfólks, rannsóknir á ræktun plantna til manneldis, auðniðurbrjótanlegar umbúðir fyrir matvæli, hönnun lausna fyrir neysluvatnssöfnun, rannsókn á atferli lífvera, framtíðarpælingar um erfðabreytingar lífvera og svo mætti lengi telja.
Það er ekki til réttari staður fyrir LHÍ en Vatnsmýrin. Kostnaðaráætlun upp á 1 milljón á fermetra fyrir allt húsnæði og búnað LHÍ er ansi vel í lagt. Sá kostnaður er samt bara dropi í hafið þegar horft er á þau nýsköpunarfyrirtæki sem hafa blómstrað undanfarin ár beggja vegna Atlantsála vegna tengingar lista og vísinda.
Höfundur er vísinda- og uppfinningamaður.