Skyldur okkar í loftslagsbaráttunni

Formaður Viðreisnar skrifar um tillögur flokksins um álagningu kolefnisgjalda á stóriðju, sem hingað til hefur verið undanþegin slíkum gjöldum þrátt fyrir að vera ein stærsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.

Auglýsing

Lofts­lags­vand­inn hverfur ekki þó við séum ann­ars upp­tekin að kljást við verð­bólgu og önnur vanda­mál í heim­in­um. Lofts­lags­breyt­ingar eru þegar farnar að ógna lífs­skil­yrðum og þær breyt­ingar verða bara meiri eftir því sem tím­inn líð­ur. Síð­ustu ár hafa verið þau heit­ustu frá upp­hafi mæl­inga og skóg­ar­eldar og þurrkar eru nú tíð­ari og alvar­legri en nokkurn tím­ann fyrr. Hafís og jöklar bráðna á met­hraða og yfir­borð sjávar hefur því hækkað all­veru­lega.

Veð­ur­öfgar fær­ast í auk­ana og felli­byljum og flóðum fjölgar, með til­heyr­andi afleið­ing­um. Þær draga tugi þús­unda til dauða ár hvert og valda ólýs­an­legum skemmd­um. Millj­ónir neyð­ast svo til að flýja eigin heim­kynni, til þess eins að bjarga sér og sín­um. Eftir um 30 ár gæti þessi fjöldi náð meira en einum millj­arði. Stjórn­völd á Íslandi eru kannski ekki til­búin að lýsa yfir neyð­ar­á­standi – en hvaða orð getur ann­ars lýst veru­leika þessa fólks?

Auglýsing
Það þarf ekki bara að rýna í skýrslur til að vita hversu alvar­legur vand­inn er. Það nægir líka að opna frétta­vefi til að sjá að breyt­ingar eiga sér nú stað á áður óþekktum mæli­kvarða í sögu mann­kyns. Síð­ast í morgun bár­ust fréttir af því að þorsk­stofn­inn á Íslandi væri í hættu vegna lofts­lags­breyt­inga. Á dög­unum var einnig sagt frá því að lunda­stofn­inn í Evr­ópu gæti horfið síðar á öld­inni vegna fæðu­skorts og versn­andi veð­urs sökum lofts­lags­breyt­inga. Þetta eru nær­tæk dæmi en eru þó ekki nema brota­brot af heild­ar­mynd­inni.

Við nýtt fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar höfum við lagt til þá breyt­ingu að grænir skattar verði betur nýttir til að takast á við lofts­lags­vand­ann. Ísland á að vera í fremstu röð í þeirri bar­áttu. Þar eru hag­rænir hvatar eitt öfl­ug­asta og skil­virkasta verk­færi stjórn­valda. Þess vegna viljum við að kolefn­is­gjöld verði lögð á stór­iðju, sem hingað til hefur verið und­an­þegin slíkum gjöldum þrátt fyrir að vera ein stærsta upp­spretta gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi.

Sorg­legar sögur og slá­andi stað­reyndir um afleið­ingar lofts­lags­vand­ans draga allar fram sömu mynd­ina. Verði ekki gripið til harð­ari aðgerða munu enn alvar­legri breyt­ingar eiga sér stað. Grund­vall­ar­breyt­ingar á jörð­inni, lofts­lagi hennar og vist­kerf­um. Þær hlífa eng­um, spyrja hvorki kóng né prest, þó þær bitni vissu­lega mis­mikið á íbúum jarð­ar.

Næstu ár verða ekki ein­göngu próf­raun á skyn­semi og sam­vinnu því vand­inn kallar líka á sam­tal um sið­ferð­is­legar skyldur okk­ar, skyldur gagn­vart jörð­inni sjálfri og manns­líf­inu öllu og ekki síst gagn­vart fram­tíð­ar­kyn­slóð­um. Því ber okkur rík skylda til að takast á við þessa stærstu ógn okkar tíma og það af fullum krafti. Miklu stærri skref þarf í þess­ari bar­áttu.

Höf­undur er for­maður Við­reisn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar