Við skulum ekki venjast því!

Nýárskveðja frá Stjórnarskrárfélaginu.

Auglýsing

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið óskar lands­mönnum árs og friðar með þökkum fyrir þraut­seigju og líf­lega bar­áttu á liðnum árum. Tugir þús­unda hafa lagt mál­stað nýju stjórn­ar­skrár­innar lið með beinum hætti vit­andi að ekki aðeins lýð­ræðið er í húfi. Lífs­kjör og líf­væn­leg fram­tíð kom­andi kyn­slóða í land­inu, heil­brigðir stjórn­ar­hættir og gagnsæ stjórn­sýsla, áhrif kjós­enda í kosn­ingum og milli kosn­inga, félags­legt rétt­læti og mann­rétt­indi, nátt­úra lands­ins, rétt­lát skipt­ing auðs og afrakstur af sam­eig­in­legum auð­lindum okk­ar, traustir dóm­stólar og rétt­ar­kerfi. Allt er þetta undir í nýju stjórn­ar­skránni.

Í aðfara­orðum hennar seg­ir: „Við sem byggjum Ísland viljum skapa rétt­látt sam­fé­lag þar ­sem allir sitja við sama borð.“ Það er íbúa lands­ins að móta og þróa sam­fé­lag sitt í sam­ræmi við óskir sínar og drauma. Það er bæði réttur okkar og skylda.

Auglýsing

Enn eitt árið er liðið án þess að núver­andi flokkar á Alþingi megn­uðu að virða úrslit kosn­inga um nýja stjórn­ar­skrá. Það tíunda frá þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Við skulum hafa í huga á nýju ári og ávallt að slík fram­ganga í stjórn­málum lýð­ræð­is­ríkis er ekki eðli­leg heldur óásætt­an­leg van­hæfni og vald­níðsla í senn.

Við skulum ekki venj­ast því! 

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið mun sem fyrr reiða sig á lið­sinni almenn­ings og halda bar­átt­unni fyrir nýju stjórn­ar­skránni áfram af fullum krafti á nýju ári.

Þær ánægju­legu fréttir bár­ust undir lok lið­ins árs að for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dótt­ir, ætl­aði að setja stjórn­ar­skrár­málið á dag­skrá Alþing­is, en þar hefur það legið óhreyft frá því að síð­asta stjórn­ar­skrár­til­raun stjórn­mála­flokk­anna mis­heppn­að­ist í tíð síð­ustu rík­is­stjórn­ar. Ef heil­indi, lýð­ræð­is­legar grund­vall­ar­reglur og almanna­hags­munir eru hafðir að leið­ar­ljósi en ofríki og sér­hags­munir látnir sigla sinn sjó, þá er auð­veld­lega hægt að leiða stjórn­ar­skrár­málið far­sæl­lega til lykta. Megi þau vatna­skil verða á nýju ári. 

F. h. Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins,

Katrín Odds­dótt­ir, for­mað­ur, Hjörtur Hjart­ar­son, Ingólfur Her­manns­son, Kristín Erna Arn­ar­dótt­ir, Sig­ríður Ólafs­dótt­ir, Sig­urður Hr. Sig­urðs­son, Þórir Bald­urs­son

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar