Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um opinberra starfsmenn á undanförnum vikum. Hefur því meðal annars verið haldið fram, að opinber rekstur sé að þenjast út með tilheyrandi fjölgun opinberra starfsmanna, og að launaþróun þeirra leiði launamyndun á atvinnumarkaði. Báðar þessar fullyrðingar eiga sér enga stoð.
Laun á almenna markaðnum hærri
Því hefur einnig verið haldið fram undanfarið að opinberir starfsmenn hafi hækkað í launum mun meira en starfsmenn á almenna markaðnum. Þeir sem halda þessu fram hafa ef til vill ekki nægjanlega haldgóðar upplýsingar. Staðreyndin er sú að kjarasamningsbundnar launahækkanir á öllum vinnumarkaðnum eru byggðar á Lífskjarasamningnum sem almenni vinnumarkaðurinn samdi um í byrjun árs 2019. Þar var samið um krónutölur en ekki prósentur. Vegna þess þá hækka lægri launin um töluvert hærri prósentu en hærri launin. Allir fá þó sömu hækkun í krónum talið og það var áherslan í kjarasamningunum. Þetta er ekki flókið reikningsdæmi.
Réttindi gefin til að jafna laun milli markaða
Annað sem stingur í augu er að hlutfall launa af rekstri ríkisins stendur í stað. Í því samhengi er nauðsynlegt að rifja upp að samkvæmt samkomulagi BSRB, BHM og KÍ við ríkið frá árinu 2016, á að jafna laun ríkisstarfsmanna við það sem gerist á almenna markaðnum. Á móti gáfu opinberir starfsmenn eftir réttindi sín í lífeyriskerfinu. Stéttarfélögin hafa þannig staðið við sinn hluta samkomulagsins en ekki er enn komin niðurstaða í hvernig leiðréttingar á launum opinberra starfsmanna verður háttað. Ljóst er að leiðréttingin mun að minnsta kosti kalla á um 16 prósent leiðréttingu að meðaltali.
Opinberum starfsmönnum fækkar
Á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins opinberumsvif.is koma fram upplýsingar um þróun á starfsmannahaldi ríkisins á undanförnum árum. Þar má meðal annars sjá að launakostnaður sem hlutfall af heildarútgjöldum hefur verið í kring um 30 prósent á undanförnum árum og stendur nú í 32,4 prósent miðað við árið 2020. Sérstaka athygli vekur að hlutfallslega hefur opinberum starfsmönnum fækkað. Árið 2014 voru starfandi 113,5 opinberir starfsmenn á móti hverjum 1.000 íbúum í landinu. Þeir eru núna 109,5. Miðað við sama tímabil hefur hlutfall opinberra starfsmanna á vinnumarkaði lækkað úr 28 prósent í 27 prósent.
Tekið er fram að flest launafólk hjá ríkinu vinni í velferðar-, mennta- og heilbrigðiskerfinu. Það er að segja í þeim kerfum sem tryggja að samfélagið veiti þjóðinni öryggi, velferð og þekkingu og þar með forsendur fyrir heilbrigðu atvinnulífi. Það hefur margoft komið fram að okkar fámenna þjóð vill traustan samfélagslegan rekstur og í þeirri framþróun sem samfélagið hefur verið í á undanförnum árum vekur það sérstaka athygli að opinberum starfsmönnum hafi ekki fjölgað. Sagan þar að baki er eflaust sú að álag í opinberum störfum hefur stóraukist og á sama tíma hefur starfsmönnum tekist að endurskipuleggja vinnubrögð og verkferla.
Í umræðu um starfsmenn og rekstur í okkar mikilvægustu samfélagslegu stoðum, er æskilegt að halda til haga staðreyndum. Við höfum núna aðgang að vel framsettum upplýsingum og það er ekki til of mikils mælst að gera þá kröfu að umræðan taki mið af bestu þekkingu á hverjum tíma.
Höfundur er formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu.