1,3 milljónir ferðamanna um Leifstöð í fyrra - 32 prósent aukning í desember

Árið 2015 einkenndist af miklum vexti í ferðamennsku. Í október komur tæplega 50 prósent fleiri ferðamenn en á sama tíma árið 2014.

kef-2.jpg
Auglýsing

Um 70.900 erlendir ferða­menn fóru frá land­inu í des­em­ber síð­ast­liðnum sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu í Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar eða 17.100 fleiri en í des­em­ber 2014. 

Aukn­ingin nemur 31,9 pró­sent milli ára. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu.

Fjöldi erlendra ferða­manna um Kefla­vík­ur­flug­völl var því um 1.262.000 á árinu 2015. Gera má ráð fyrr að töl­urnar nái til um 97 pró­sent ferða­manna sem hingað komu, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Ótaldir eru þeir sem komu um aðra milli­landa­flug­velli, far­þegar Nor­rænu og skemmti­ferða­skipa, en heild­ar­upp­gjör fyrir árið mun liggja fyrir síðar í mán­uð­in­um.

Auglýsing

Þegar ein­staka mán­uðir eru skoð­aðir sét, að mesta fjölg­unin er utan sum­ar­mán­aða. Mesta fjölg­unin milli ára var í októ­ber, en 49,3 pró­sent fleiri ferða­menn fóru um Kefla­vík­ur­flug­völl í þeim mán­uði í fyrra en árið á und­an.

Heilt yfir var fjölg­unin eft­ir­far­andi, skipt niður á mán­uði:

• 34,5% í jan­úar

• 34,4% í febr­úar

• 26,8% í mars

• 20,9% í apríl

• 36,4% í maí

• 24,2% í júní

• 25,0% í júlí

• 23,4% í ágúst

• 39,4% í sept­em­ber

• 49,3% í októ­ber

• 34,1% í nóv­em­ber

• 31,9% í des­em­ber

Bretar og Banda­ríkja­menn 51,5% ferða­manna

Um 76 pró­sent ferða­manna í des­em­ber síð­ast­liðnum voru af tíu þjóð­ern­um, að því er segir í frétta­til­kynn­ing­unni. Bretar voru lang­fjöl­menn­astir eða 34,3% af heild­ar­fjölda og næst­fjöl­menn­astir voru Banda­ríkja­menn (17,2%). Þar á eftir fylgdu Kín­verjar (6,8%), Pól­verjar (3,8%), Þjóð­verjar (2,9%), Jap­anir (2,5%), Danir (2,3%), Frakkar (2,3%), Norð­menn (2,0%) og Kanada­menn (2,0%).

Af ein­staka þjóð­ernum fjölg­aði Bret­um, Banda­ríkja­mönnum og Kín­verjum mest milli ára í des­em­ber en 6.700 fleiri Bretar komu í des­em­ber í ár en í fyrra, um 5.400 fleiri Banda­ríkja­menn og um 1.900 fleiri Kín­verj­ar. Þessar þrjár þjóðir báru uppi 81,9% aukn­ingu ferða­manna í des­em­ber.

Fjöldi ferða­manna í des­em­ber á tíma­bil­inu 2002-2015

Ferða­mönnum í des­em­ber hefur fjölgað veru­lega frá því Ferða­mála­stofa hóf taln­ingar á Kefla­vík­ur­flug­velli árið 2002 og þá einkum síð­ast­liðin fjögur ár. Þannig hefur heild­ar­fjöldi ferða­manna í des­em­ber­mán­uði meira en þre­fald­ast frá árinu 2011 og munar þá mestu um aukn­ingu Breta sem hafa meira en fimm­faldast, N-Am­er­ík­ana sem hafa meira en fjór­fald­ast og þeirra sem flokk­ast undir ,,önnur þjóð­erni“ sem hafa nærri fjór­fald­ast. Ferða­menn frá Mið- og S-Evr­ópu hafa á sama tíma tvö­fald­ast en Norð­ur­landa­búum hefur ein­ungis fjölgað lít­ils­hátt­ar.

Tæp­lega 1,3 milljón á árinu

Á árinu 2015 fóru tæp­lega 1,3 millj­ónir erlendra ferða­manna frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­völl eða um 292.700 fleiri en á árinu 2014. Um er að ræða 30,2% aukn­ingu milli ára. Veru­leg aukn­ing hefur verið frá flestum mörk­uðum nema Norð­ur­lönd­unum sem hafa staðið í stað. Aukn­ingin hefur verið 51,6% frá N-Am­er­íku, 33,5% frá Bret­landi, 19,6% frá Mið- og S-Evr­ópu og 41,7% frá öðrum löndum sem ekki eru talin sér­stak­lega og flokk­ast undir ,,ann­að“.

Ferðir Íslend­inga utan

Um 32.900 Íslend­ingar fóru utan í des­em­ber síð­ast­liðnum eða um 4.800 fleiri en í des­em­ber árið 2014. Á árinu 2015 fóru um 450.300 Íslend­ingar utan eða um 50.300 fleiri en á árinu 2014. Aðeins einu sinni áður hafa ferðir Íslend­inga utan verið fleiri á einu ári en það var árið 2007.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None