Forsætisráðuneytið vinnur nú að því að setja nýjar siðareglur fyrir ráðherra, í samráði við öll ráðuneytin. Þetta kemur fram í svari forsætisráðuneytisins við bréfi umboðsmanns Alþingis, sem óskaði eftir viðbrögðum við bréfi sem hann sendi til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra, í kjölfar lekamálsins. Sigmundur Davíð sagði á þingi í janúar í fyrra að forsætisráðuneytið myndi skoða allar athugasemdir umboðsmanns Alþingis.
Sigmundur Davíð undirritaði aldrei siðareglur fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar. Á meðan siðareglur hafa ekki verið undirritaðar hafa reglurnar sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur setti og ríkisstjórn Sigmundar Davíð sagðist líta til ekki stjórnsýslulegt gildi. Umboðsmaður Alþingis, sem á að gæta þess samkvæmt lögum að stjórnsýslan fari fram í samræmi við siðareglurnar, getur því ekki látið í ljós álit sitt á því hvort brotið hafi verið gegn siðareglum. „Það er afstaða mín að umboðsmaður Alþingis geti ekki byggt á því að siðareglur fyrir ráðherra nr. 360/2011 gildi um störf ráðherra í núverandi ríkisstjórn nema til komi formlegt samþykki ríkisstjórnarinnar á þeim reglum,“ skrifaði Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, í bréfi til Sigmundar Davíðs fyrir rúmu ári síðan. Umboðsmaður geti því ekki haft eftirlit með því að stjórnsýsla starfi í samræmi við siðareglur nema reglur hafi verið settar með réttum og formlegum hætti. Orðalagið í lögunum sé ekki skýrt og það sé ekki ljóst hvort siðareglur fyrri ríkisstjórnar gildi.
Tryggvi benti á skort á staðfestingu í Lekamálinu
Þegar sá þáttur lekamálsins sem snéri að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þáverandi innanríkisráðherra, stóð sem hæst skrifuðust Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og Sigmundur Davíð á. Tryggvi sendi Sigmundi Davíð bréf þar sem hann benti á að siðareglur síðustu ríkisstjórnar hafi aðeins átt að gilda út starfstíma hennar, og ekki verði séð að ríkisstjórn Sigmundar hefði samþykkt nýjar siðareglur eftir að hún tók við völdum. Tryggvi óskaði eftir því að Sigmundur Davíð upplýsti hann um það hvort búið væri að samþykkja reglur, og óskaði eftir afriti ef svo væri. Ef ekki væri búið að samþykkja siðareglur var óskað eftir afstöðu Sigmundar til þess hvort siðareglur síðustu ríkisstjórnar giltu áfram í hans ríkisstjórn.
Sigmundur Davíð svaraði bréfinu skömmu síðar og sagði að ríkisstjórnin hefði litið svo á að siðareglurnar frá árinu 2011 ættu við um störf ráðherra. Þeir hafi fengið kynningu á reglunum í upphafi starfstíma ríkisstjórnarinnar, og þær hafi verið hluti af handbók sem þeir fengu allir. Sigmundur Davíð sagði líka að siðareglur ráðherra og hugsanlegar breytingar á þeim hafi komið til umræðu í ríkisstjórn, og ekki væri ólíklegt að ráðist yrði í breytingar þannig að þær yrðu skýrðar og einfaldaðar. Það hefur ekki verið gert. Hins vegar var greint frá því í desember 2014 að ríkisstjórnin hygðist auka vægi og eftirfylgni með siðareglum innan Stjórnarráðsins, meðal annars í samráði við umboðsmann Alþingis og Ríkisendurskoðun. Í því skyni voru lagðar til breytingar á lögum um Stjórnarráðið.
Þegar umboðsmaður Alþingis hafði lokið athugun sinni á Lekamálinu sendi hann forsætisráðherra bréf með ábendingum, meðal annars um samþykkt siðareglna.
„Þegar það kemur í hlut umboðsmanns Alþingis að leggja mat á hvort tilteknar reglur sem hann á að hafa eftirlit með hafi gilt um athafnir stjórnvalds þarf að huga að því hvort þær hafi verið settar með réttum hætti […] Ég til hins vegar vafa leika á því hvort þær hafi verið settar með réttum hætti,“ skrifaði Tryggvi meðal annars. Hann teldi sig því ekki hafa forsendur til að leggja til grundvallar að siðareglurnar hafi verið í gildi um samskipti Hönnu Birnu við Stefán Eiríksson þáverandi lögreglustjóra. Þar sem siðareglur hafa ekki enn verið staðfestar með formlegum hætti er því væntanlega það sama uppi á teningnum þegar kemur að máli Sigmundar Davíðs og eiginkonu hans.
Tryggvi sagði orðalagið ekki skýrt í lögunum um Stjórnarráðið og benti á að „eftirlit umboðsmanns með því að stjórnsýsla starfi í samræmi við siðareglur getur ekki komið til nema slíkar reglur hafi verið settar með réttum og formlegum hætti.“
Einnig settar reglur um skráningu samskipta og aðstoðarmenn ráðherra
Umboðsmaður Alþingis tók líka fram í bréfi sínu við lok Lekamálsins að hann teldi að huga þyrfti betur að framkvæmd reglna um skráningu formlegra samskipta í stjórnarráðinu. Reglur þar um hafa verið staðfestar og birtar nú og segist forsætisráðuneytið ætla að efna til fræðslufunda í ráðuneytum til að tryggja að rétta innleiðingu þeirra.
Þá ræddi umboðsmaður Alþingis einnig um lagalega stöðu aðstoðarmanna ráðherra, meðal annars um heimildir þeirra til að koma fram gagnvart forstöðumönnum stofnana sem heyra undir ráðuneytið eða leita upplýsinga hjá þeim. Gísli Freyr Valdórsson, sem var aðstoðarmaður þáverandi innanríkisráðherra Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, leitaði slíkra upplýsingar hjá Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum og núverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, og hún sagðist hafa litið svo á að það væri gert fyrir hönd ráðuneytisins. Gísli Freyr var síðar dæmdur í Lekamálinu.
Forsætisráðuneytið hefur tekið ábendingar umboðsmanns til greina og endurskoðað leiðbeinandi erindisbréf fyrir aðstoðarmenn.