Forsætisráðuneytið semur nýjar siðareglur fyrir ráðherra

Forsætisráðuneytið hefur brugðist við ábendingum umboðsmanns Alþingis í kjölfar Lekamálsins. Unnið er að nýjum siðareglum og búið er að uppfæra reglur um samskipti og erindisbréf fyrir aðstoðarmenn.

sigurður ingi jóhannsson
Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið vinnur nú að því að setja nýjar siða­reglur fyrir ráð­herra, í sam­ráði við öll ráðu­neyt­in. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við bréfi umboðs­manns Alþing­is, sem óskaði eftir við­brögðum við bréfi sem hann sendi til Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í kjöl­far leka­máls­ins. Sig­mundur Davíð sagði á þingi í jan­úar í fyrra að for­sæt­is­ráðu­neytið myndi skoða allar athuga­semdir umboðs­manns Alþing­is. 

Sig­­mund­ur Da­víð und­ir­­rit­aði aldrei ­siða­­reglur fyrir hönd rík­­is­­stjórnar sinn­ar. Á meðan siða­reglur hafa ekki verið und­ir­rit­aðar hafa regl­urnar sem rík­­is­­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur setti og rík­­is­­stjórn Sig­mundar Davíð sagð­ist líta til ekki stjórn­­­sýslu­­leg­t ­gildi. Umboðs­­maður Alþing­is, sem á að gæta þess sam­­kvæmt lög­­um að stjórn­­­sýslan fari fram í sam­ræmi við siða­regl­­urn­­ar, get­ur því ekki látið í ljós álit sitt á því hvort brotið hafi verið gegn siða­regl­­um. Það er afstaða mín að umboðs­­maður Alþingis geti ekki byggt á því að siða­­reglur fyrir ráð­herra nr. 360/2011 gildi um störf ráð­herra í núver­andi rík­­is­­stjórn nema til komi for­m­­leg­t ­sam­­þykki rík­­is­­stjórn­­­ar­innar á þeim regl­u­m,“ skrif­aði Tryggvi G­unn­­ar­s­­son, umboðs­­maður Alþing­is, í bréfi til Sig­­mundar Dav­­íðs ­fyrir rúmu ári síð­­­an. Umboðs­­maður geti því ekki haft eft­ir­lit með því að stjórn­­­sýsla starfi í sam­ræmi við siða­­reglur nema reglur hafi verið settar með réttum og for­m­­legum hætti. Orða­lagið í lög­­unum sé ekki skýrt og það sé ekki ljóst hvort siða­­reglur fyrri rík­­is­­stjórnar gild­i. 

Tryggvi benti á skort á stað­­fest­ingu í Leka­­mál­inu

Þeg­ar sá þáttur leka­­máls­ins sem snéri að Hönnu Birn­u Krist­jáns­dótt­­ur, þáver­andi inn­­an­­rík­­is­ráð­herra, stóð sem hæst ­skrif­uð­ust Tryggvi Gunn­­ar­s­­son, umboðs­­maður Alþing­is, og Sig­­mund­ur Da­víð á. Tryggvi sendi Sig­­mundi Davíð bréf þar sem hann bent­i á að siða­­reglur síð­­­ustu rík­­is­­stjórnar hafi aðeins átt að ­gilda út starfs­­tíma henn­­ar, og ekki verði séð að rík­­is­­stjórn­ ­Sig­­mundar hefði sam­­þykkt nýjar siða­­reglur eftir að hún tók við völd­­um. Tryggvi óskaði eftir því að Sig­­mundur Davíð upp­­lýsti hann um það hvort búið væri að sam­­þykkja regl­­ur, og óskaði eft­ir af­­riti ef svo væri. Ef ekki væri búið að sam­­þykkja siða­regl­ur var óskað eftir afstöðu Sig­­mundar til þess hvort siða­regl­ur ­síð­­­ustu rík­­is­­stjórnar giltu áfram í hans rík­­is­­stjórn.

Auglýsing

Sig­­mundur Dav­­íð svar­aði bréf­inu skömmu síðar og sagði að rík­­is­­stjórnin hefð­i litið svo á að siða­regl­­urnar frá árinu 2011 ættu við um störf ráð­herra. Þeir hafi fengið kynn­ingu á regl­unum í upp­­hafi ­starfs­­tíma rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar, og þær hafi verið hluti af hand­­bók sem þeir fengu all­­ir. Sig­­mundur Davíð sagði líka að siða­regl­ur ráð­herra og hugs­an­­legar breyt­ingar á þeim hafi komið til umræð­u í rík­­is­­stjórn, og ekki væri ólík­­­legt að ráð­ist yrði í breyt­ingar þannig að þær yrðu skýrðar og ein­fald­að­­ar. Það hefur ekki verið gert. Hins vegar var greint frá því í des­em­ber 2014 að rík­­is­­stjórnin hygð­ist auka vægi og eft­ir­­fylgni með siða­­reglum innan Stjórn­­­ar­ráðs­ins, meðal ann­­ars í sam­ráði við umboðs­­mann Alþingis og Rík­­is­end­­ur­­skoð­un. Í því skyni voru lagðar til breyt­ingar á lögum um Stjórn­­­ar­ráð­ið. 

Þeg­ar ­um­­boðs­­maður Alþingis hafði lokið athugun sinni á Leka­­mál­in­u sendi hann for­­sæt­is­ráð­herra bréf með ábend­ingum, meðal ann­­ar­s um sam­­þykkt siða­reglna.

Þeg­ar það kemur í hlut umboðs­­manns Alþingis að leggja mat á hvort til­­­teknar reglur sem hann á að hafa eft­ir­lit með hafi gilt um ­at­hafnir stjórn­­­valds þarf að huga að því hvort þær hafi ver­ið ­settar með réttum hætti […] Ég til hins vegar vafa leika á því hvort þær hafi verið settar með réttum hætt­i,“ skrif­að­i ­Tryggvi meðal ann­­ars. Hann teldi sig því ekki hafa for­­sendur til­ að leggja til grund­vallar að siða­regl­­urnar hafi verið í gildi um ­sam­­skipti Hönnu Birnu við Stefán Eirík­s­­son þáver­and­i lög­­­reglu­­stjóra. Þar sem siða­­reglur hafa ekki enn ver­ið ­stað­­festar með for­m­­legum hætti er því vænt­an­­lega það sama ­uppi á ten­ingnum þegar kemur að máli Sig­­mundar Dav­­íðs og eig­in­­konu hans. 

Tryggvi ­sagði orða­lagið ekki skýrt í lög­­unum um Stjórn­­­ar­ráðið og benti á að „eft­ir­lit umboðs­­manns með því að stjórn­­­sýsla ­starfi í sam­ræmi við siða­­reglur getur ekki komið til nema slík­­ar ­reglur hafi verið settar með réttum og for­m­­legum hætt­i.“ 

Einnig settar reglur um skrán­ingu sam­skipta og aðstoð­ar­menn ráð­herra

Umboðs­maður Alþingis tók líka fram í bréfi sínu við lok Leka­máls­ins að hann teldi að huga þyrfti betur að fram­kvæmd reglna um skrán­ingu form­legra sam­skipta í stjórn­ar­ráð­inu. Reglur þar um hafa verið stað­festar og birtar nú og seg­ist for­sæt­is­ráðu­neytið ætla að efna til fræðslu­funda í ráðu­neytum til að tryggja að rétta inn­leið­ingu þeirra. 

Þá ræddi umboðs­maður Alþingis einnig um laga­lega stöðu aðstoð­ar­manna ráð­herra, meðal ann­ars um heim­ildir þeirra til að koma fram gagn­vart for­stöðu­mönnum stofn­ana sem heyra undir ráðu­neytið eða leita upp­lýs­inga hjá þeim. Gísli Freyr Val­dórs­son, sem var aðstoð­ar­maður þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, leit­aði slíkra upp­lýs­ingar hjá Sig­ríði Björk Guð­jóns­dótt­ur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum og núver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og hún sagð­ist hafa litið svo á að það væri gert fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins. Gísli Freyr var síðar dæmdur í Leka­mál­in­u. 

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur tekið ábend­ingar umboðs­manns til greina og end­ur­skoðað leið­bein­andi erind­is­bréf fyrir aðstoð­ar­menn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None