Níu þingmenn ætla að hætta og fimm eru óákveðnir með framhaldið
Níu sitjandi þingmenn, þar af einn ráðherra, nefndarformaður og forseti Alþingis, ætla að hætta á þingi eftir núverandi kjörtímabil. Tveir öflugir Framsóknarmenn úr Reykjavíkurkjördæmi norður ætla segja skilið við Alþingi.
Línur eru farnar að skýrast varðandi áætlanir sitjandi þingmanna í næstu Alþingiskosningum. Þó að kjördagur hafi enn ekki verið ákveðinn er ljóst að langflestir þingmenn ætla að gefa kost á sér áfram, þó að nokkrir séu að hellast úr lestinni.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks, þeir Brynjar Níelsson, Vilhjálmur Bjarnason og Birgir Ármannsson voru allir óákveðnir þegar Kjarninn spurði þá í apríl hvort þeir ætluðu að halda áfram, en þeir hafa nú ákveðið sig og ætla að gefa kost á sér í prófkjörum flokksins fyrir næstu þingkosningar. Það sama á við um Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, þingmann Vinstri grænna.
Þá hafa fregnir borist af fleira fólki sem vill gefa kost á sér til þings í næstu kosningum, þar á meðal norðausturkjördæmismennirnir Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, og Björn Þorláksson, fyrrverandi ritstjóri, sem vill fara á þing fyrir Pírata.
Tveir sitjandi þingmenn Bjartrar framtíðar af sex ætla að hætta; Brynhildur Pétursdóttir þingflokksformaður og Róbert Marshall. Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og 2. þingmaður Framsóknarflokks í Reykjavíkurkjördæmi norður, ætlar líka að segja skilið við þingið, en hann hafði áður sagt við Kjarnann hann ætlaði að halda áfram. Honum hefur því snúist hugur. Sigrún Magnúsdóttir, auðlinda- og umhverfisráðherra og 7. þingmaður Reykjavík norður, ætlar líka að hætta. Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra Framsóknar, hefur ekki gefið út hvort hún ætli að bjóða sig fram í í næstu kosningum, en með fjarveru Sigrúnar og Frosta er ljóst að það opnast tækifæri fyrir hana í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Fimm af núverandi þingmönnum Framsóknarflokksins ætla annað hvort ekki að halda áfram eða eru óákveðnir um áframhaldandi setu á þingi. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn eiga einungis einn þingmann hvor sem ætlar að hætta.
Spurt var: Ætlar þú að gefa kost á þér áfram í næstu Alþingiskosningum?
Nokkrir þingmenn eru enn óákveðnir með framhaldið, þar á meðal Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi formaður Bjartrar framtíðar, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar og formaður velferðarnefndar Alþingis.
Þá hafa aðrir þingmenn ekki viljað svara fyrirspurn Kjarnans. Þar af eru tveir ráðherrar Sjálfstæðisflokks, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Illugi Gunnarsson. Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknar, hefur heldur ekki viljað gefa upp áform sín. Línan hjá ráðherrunum tveimur og formanni VG hefur verið sú að tilkynna fyrst um áætlanir innan flokka sinna, en ekki í fjölmiðlum.
Ekki hefur náðst í Hönnu Birnu Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformann Sjálfstæðisflokksins, eða Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar og þingmann Framsóknarflokks. Ekki náðist heldur í Ragnheiði Ríkharðsdóttur, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, en hún sagðist í apríl vera óákveðin með framhaldið.