Íslendingar flykkjast í verðtryggð lán

Mikið er rætt um verðtryggingu, takmörkun hennar eða afnám. Íslendingar, sem hafa val um óverðtryggð og verðtryggð lán, taka hins vegar mun frekar verðtryggð lán. Og umfang verðtryggðra lána hefur aukist gríðarlega síðustu misseri.

druslugangan_19432731344_o.jpg
Auglýsing

Alls voru 85 pró­sent þeirra nýju lána sem íslenskar inn­láns­stofn­anir veittu við­skipta­vinum sínum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins verð­tryggð. Bankar lán­uðu sam­tals 39,3 millj­arða króna að frá­dregnum upp­greiðslum til heim­ila lands­ins á fyrri helm­ingi árs­ins 2016 og þar af voru 33,3 millj­arðar króna verð­tryggð lán. Ein­ungis sex millj­arðar króna voru óverð­tryggð lán.

Um er að ræða mik­inn við­snún­ing á örfáum árum, en eftir að bankar hófu að bjóða upp á óverð­tryggð lán haustið 2011 nutu slík mik­illa vin­sælda. Sem dæmi má nefna að á tveggja mán­aða tíma­bili - í maí og júní 2013 - tóku við­skipta­vinir banka sam­tals um 6,5 millj­arða króna í óverð­tryggð lán, eða hærri upp­hæð en þeir tóku á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Á þeim tíma nutu verð­tryggðu lánin ekki mik­illa vin­sælda og voru 2,9 millj­arðar króna að frá­dregnum upp­greiðsl­um. Því námu verð­tryggð lán á þessu tveggja mán­aða tíma­bili árið 2013 um 30 pró­sent allra lána til heim­ila en óverð­tryggð lán voru um 70 pró­sent slíkra.

Auglýsing

Sú þróun var ein­kenn­andi fyrir stöð­una eins og hún var á árinu 2013 og fram á árið 2014. Í febr­úar það ár gerð­ust hins vegar tíð­indi; verð­bólga á Íslandi fór í fyrsta sinn í mörg ár undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands. Hún hefur hald­ist þar síðan og er nú ein­ungis 1,1 pró­sent. Ásókn íslenskra lán­tak­enda í verð­tryggð lán hefur auk­ist jafn og þétt á und­an­förnum árum en það sem af er þessu ári hefur orðið algjör kúvend­ing, líkt og sést á mynd­inni hér að neð­an.

Bláa línan sýnir óverðtryggð lán en sú rauða verðtryggð lán.Alls eru útlán inn­láns­stofn­ana til heim­ila 926,6 millj­arðar króna. Þar af eru verð­tryggð útlán 550,2 millj­arðar króna, eða um 60 pró­sent þeirra. Inni í þessum tölum eru ekki ein­ungis íbúða­lán heldur einnig bíla­lán og önnur lán, t.d. yfir­drætt­ir.

Þrjár af hverjum fjórum lán­uðum krónum sjóða verð­tryggð­ar 

Kjarn­inn greindi frá því um liðna helgi að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins virð­ast hafa tekið sér for­ystu­hlut­verk í veit­ingu íbúða­lána á und­an­förnu tæpu ári. Þeir lán­uðu rúm­lega 38 millj­arða króna til íslenskra heim­ila á fyrri helm­ing­i árs­ins, sam­­kvæmt nýjum tölum frá Seðla­­banka Íslands­. Hlut­deild sjóð­anna á íbúða­lána­­mark­að­i hefur auk­ist veru­­lega eftir að nokkrir stórir líf­eyr­is­­sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arn­ir, óverð­­tryggð lán og lægra lán­töku­gjald á seinni hluta árs 2015.

Til sam­an­­burðar námu lán líf­eyr­is­­sjóð­anna til heim­ila rétt tæp­­lega fimm millj­­örðum króna á sama tíma­bili í fyrra, áður en líf­eyr­is­­sjóð­irnir hófu í raun þessa inn­­reið sína á íbúða­lána­­mark­að­inn. Á seinni helm­ingi árs­ins 2015 voru veitt lán fyrir 16,7 millj­­arða króna, og útlánin hafa hækkað jafnt og þétt. 

Hlut­­deild verð­­tryggðra lána er mun meiri en óverð­­tryggðra. Verð­­tryggð lán á fyrri helm­ingi árs­ins námu ríf­­lega 28 millj­­örðum króna en óverð­­tryggð rúm­­lega 10 millj­­örð­­um. 1817 ný verð­­tryggð lán voru veitt heim­ilum á fyrri hluta árs­ins en 648 óverð­­tryggð, sam­tals 2465 ný lán. 



82 pró­sent hús­næð­is­lána verð­tryggð um ára­mót

Kjarn­inn kall­aði fyrr á þessu ári eftir upp­lýs­ingum frá öllum við­skipta­bönk­unum þrem­ur: Lands­bank­an­um, Íslands­banka og Arion banka um hvernig hús­næð­is­lán þeirra skipt­ust eftir lána­formum um síð­ustu ára­mót. Hús­næð­is­lán Lands­bank­ans voru 217 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og höfðu vaxið mikið á árinu 2015, en þau voru 169 millj­arðar króna í byrjun þess árs. Ný og end­ur­fjár­mögnuð lán hjá bank­anum voru 70 millj­arðar króna í fyrra og þar af voru 48 millj­arðar króna vegna nýrra lána. Af þeim nýju lánum voru 63 pró­sent verð­tryggð en 37 pró­sent óverð­tryggð. Alls var skipt­ing hús­næð­is­lána­safns Lands­bank­ans þannig að 144 millj­arðar króna, eða 66 pró­sent, voru verð­tryggð lán. Óverð­tryggð lán voru 73 millj­arðar króna, eða 34 pró­sent af hús­næð­is­lánum bank­ans.

Íslands­banki átti íbúða­lán upp á 197,3 millj­arða króna í byrjun þessa árs. Þau hækk­uðu um tæpa þrettán millj­arða króna í fyrra. Skipt­ing hús­næð­is­lána­safns­ins var þannig að 66 pró­sent þess voru verð­tryggð lán en 34 pró­sent óverð­tryggð lán.

Arion banki átti síðan stærsta safn hús­næð­is­lána af öllum við­skipta­bönk­un­um. Alls nema hús­næð­is­lán bank­ans 268 millj­örðum króna. Það minnk­aði um fjóra millj­arða króna á árinu 2015 og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Arion banka var sú lækkun aðal­lega til­komin vegna leið­rétt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar sem greiddi upp ell­efu millj­arða króna af lánum hjá bank­anum á árinu. Í árs­lok var skipt­ing hús­næð­is­lána Arion banka þannig að 73 pró­sent þeirra voru verð­tryggð en 27 pró­sent óverð­tryggð.

Stærsti hús­næð­is­lán­veit­andi lands­ins er enn Íbúða­lána­sjóð­ur, þótt hann hafi vart verið þátt­tak­andi í nýjum útlánum á und­an­förnum árum. Hann lánar ein­ungis verð­tryggt og hús­næð­is­lán hans til ein­stak­linga námu 560,4 millj­örðum króna í lok síð­asta árs.

Sam­kvæmt ofan­greindum tölum námu heild­ar­út­lán við­skipta­bank­anna þriggja og Íbúða­lána­sjóðs til hús­næð­is­kaupa því um 1.200,5 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Þar af voru verð­tryggð hús­næð­is­lán 988 millj­arðar króna. Því voru 82 pró­sent allra hús­næð­is­lána aðil­anna verð­tryggð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None