Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga verður endurskipaður á næstunni. Þeir fulltrúar sem sæti fá í hópnum munu endurspegla betur alla þá hagsmunaaðila sem endurskoðun samninganna snertir, t.d. bændur, neytendur, verslun og vinnumarkaðinn. Þetta staðfestir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við Kjarnann.
Gunnar Bragi Sveinsson, fráfarandi ráðherra málaflokksins, lauk við að skipa í samráðshópinn 18. nóvember síðastliðinn, þremur vikum eftir kosningar og mánuði eftir að skipan hans átti upphaflega að liggja fyrir. Af þeim tólf fulltrúum sem skipaðir voru í hópinn voru átta fulltrúar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis eða Bændasamtaka Íslands, þien sömu og gerðu búvörusamninganna í febrúar 2016 sem til stendur að endurskoða. Launþegar, atvinnulífið og neytendur áttu samtals fjóra fulltrúa. Á meðal þeirra sem voru skipaðir í hópinn af ráðuneytinu var Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.
Bændur hafa neitunarvald
Búvörusamningar til tíu ára voru undirritaðir í febrúar 2016 og samþykktir á Alþingi síðastliðið haust. Kostnaður ríkissjóðs vegna þeirra er 13-14 milljarðar króna á ári.
Einungis 19 þingmenn, eða 30 prósent allra þingmanna, greiddu atkvæði með búvörusamningunum þegar þeir voru samþykktir á Alþingi á í september. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki viðstaddir atkvæðagreiðsluna sem mun móta eitt af lykilkerfum íslensks samfélags, hið ríkisstyrkta landbúnaðarkerfi, næsta áratuginn.
Í lok ágúst lagði meirihluti atvinnuveganefndar fram breytingartillögur á samningunum. Þegar þær voru kynntar var látið að því liggja að í tillögunum væri skýrt kveðið á um endurskoðunarákvæði innan þriggja ára. Engar frekari breytingar voru gerðar á lögum sem gera samninganna gildandi eftir þær breytingatillögur. Ákvæðið um endurskoðun samninganna er þó ekki mjög skýrt. Í áliti meirihlutanefndar atvinnuveganefndar sagði: „Meiri hlutinn leggur áherslu á að við samþykkt frumvarpsins nú eru fyrstu þrjú ár samninganna staðfest og mörkuð framtíðarsýn til tíu ára. Meiri hlutinn leggur til ákveðna aðferðafræði fyrir endurskoðun samninganna árið 2019 og skal ráðherra þegar hefjast handa við að endurmeta ákveðin atriði og nýtt fyrirkomulag gæti mögulega tekið gildi í ársbyrjun 2020. Meiri hlutinn leggur til að endurskoðunin byggist á aðferðafræði sem feli í sér víðtæka samstillingu um landbúnaðinn, atkvæðagreiðslu um endurskoðaða samninga meðal bænda og afgreiðslu Alþingis á lagabreytingum sem sú endurskoðun kann að kalla á.“
Í breytingartillögunni sjálfri sagði: „Eigi síðar en 18. október 2016 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipa samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga. Tryggja skal aðkomu afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda að endurskoðuninni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019. Skulu bændur eiga þess kost að kjósa um nýjan búvörusamning eða viðbætur við fyrri samninga.
Kjarninn beindi fyrirspurn til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um hvort að það bæri að skilja lögin þannig að bændur myndu alltaf fá að kjósa um þá endurskoðun sem muni eiga sér stað eigi síður en árið 2019. Svar ráðuneytisins var já.
Þegar spurt var hvað myndi gerast ef bændur myndu hafna þeirri endurskoðun í atkvæðagreiðslu var svarið: „Ef bændur hafna þeim breytingum sem hugsanlega verða gerðar við endurskoðunina 2019 verður aftur sest niður og leitað frekari samninga.“
Mikil áhersla lögð á að fá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Björt framtíð greiddi ein stjórnmálaflokka í heild sinni atkvæði gegn samningunum. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar eru engar kollsteypur í landbúnaði. Þar segir að endurskoðun búvörusamnings verði grunnur að nýja samkomulagi við bændur, sem miðað er við að ljúki eigi síðar en árið 2019.
Í sáttmálanum segir að af hálfu stjórnvalda verði „hvatt til að vægi almennari stuðnings verði aukið, svo sem til jarðræktar, fjárfestingar, nýsköpunar, umhverfisverndar og nýliðunar, en dregið úr sértækum búgreinastyrkjum. Endurskoða þarf ráðstöfun innflutningskvóta og greina forsendur fyrir frávikum frá samkeppnislögum fyrir mjólkuriðnaðinn og gera viðeigandi breytingar.“
Viðreisn lagði hins vegar mikla áherslu á að fá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið til að geta komið á breytingum á þeim málaflokkum, þótt engar tímasettar eða útfærðar breytingar séu í stjórnarsáttmála. Endurskipun starfshóps um endurskoðun búvörusamninga er fyrsta skrefið í þá átt.