Réði menn í vinnu til gera varnarsíður og safna upplýsingum um blaðamenn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson réð tvo menn til að setja á fót varnarsíður fyrir sig og til að safna upplýsingum um hvaða blaðamenn væru að skrifa hvað og hverjir þeirra væru Sigmundi Davíð erfiðastir. Framsóknarflokkurinn neitaði að borga fyrir vinnuna.
Fyrrverandi forsætisráðherra í endurkomuhug réð almannatengil sem rekur líka skráðan fjölmiðil til að setja á fót tvær varnarvefsíður fyrir sig. Auk þess var annar maður ráðinn til þess að vinna ákveðna greiningarvinnu um hvaða blaðamenn voru að skrifa hvað og hvaða blaðamenn hefðu verið forsætisráðherranum fyrrverandi erfiðastir. Fyrir þessa vinnu átti þáverandi flokkur hans, Framsóknarflokkurinn, að greiða.
Hann neitaði að gera slíkt og því höfðaði fjölmiðlafyrirtæki almannatengilsins mál á hendur flokknum. Það mál tapaðist í dag í héraðsdómi. Og í dómnum er rakin mjög áhugaverð saga.
Söfnuðu upplýsingum um blaðamenn
Vorið 2016 var Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins, erfitt. Hann var neyddur til að segja af sér sem forsætisráðherra snemma í apríl það ár eftir að Panama-skjölin höfðu opinberað að Sigmundur Davíð og eiginkona hans áttu aflandsfélagið Wintris, sem í voru eignir upp á annan milljarð króna og félagið var auk þess kröfuhafi í bú föllnu bankanna sem Sigmundur Davíð hafði unnið að því að slíta án þess að gera grein fyrir þeim hagsmunatengslum. Afsögn hans kom eftir að 26 þúsund manns mótmæltu honum, ríkisstjórn hans og öðrum stjórnmálamönnum sem komu fyrir í Panamaskjölunum. Um var að ræða fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar. Síðar var opinberað að Wintris hefði ekki greitt skatta í samræmi við lög og reglur árum saman.
Í júní 2016 réð Sigmundur Davíð forsvarsmann fjölmiðlafyrirtækisins Forystu ehf., sem rekur m.a. fjölmiðil sem skráður er hjá Fjölmiðlanefnd, sem almannatengil til að setja á fót tvær heimasíður til stuðnings sér. Ætlunin var meðal annars sú að „setja strik í sandinn og taka til varna“.
Maðurinn, Viðar Garðarsson, var einnig ráðinn til að taka nýjar myndir af Sigmundi Davíð sem sýndu hann í jákvæðari ljósi en þær myndir sem hefðu birst í fjölmiðlum vegna Panama-skjalanna. Þá var Svanur Guðmundsson, sem síðar varð kosningastjóri Miðflokksins fyrir Alþingiskosningarnar 2017, ráðinn til þess að vinna „ákveðna greiningarvinnu, hvaða blaðamenn voru að skrifa hvað“ og „hverjir hefðu verið Sigmundi Davíð erfiðastir.“
„Akkúrat maðurinn sem þyrfti“
Svanur er eiginmaður Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, þáverandi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Guðfinna hafði sjálf leitað til Viðars skömmu áður vegna þess að töluverð vinna hafði farið í það hjá henni að svara fyrir aflandsfélagamál þáverandi félaga hennar í borgarstjórn, Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, sem var í fæðingarorlofi. Í dómi héraðsdóms segir að mál Sigmundar Davíðs hafi „verið í hámæli á sama tíma og sagðist Guðfinna hafa nefnt það við Sigmund Davíð að Framsóknarflokkurinn ætti að hugleiða fá sér almannatengil og það væri þá sjálfsagt að kynna Viðar fyrir Sigmundi. Guðfinna mun síðan hafa kynnt Sigmund Davíð og Viðar hvorn fyrir öðrum á fundi í júní 2016 en með þeim á fundinum var eiginmaður hennar, Svanur Guðmundsson. Lýsti Guðfinna því fyrir dóminum að hana minnti að Sigmundur Davíð hefði sagt á fundinum að Viðar „væri akkúrat maðurinn sem þyrfti“.
Vildi 100 milljóna kosningabaráttu
Í kjölfarið fundaði Viðar aftur með Sigmundi Davíð og þungavigtarfólki innan Framsóknarflokksins á þeim tíma, þeim Lilju Alfreðsdóttur, núverandi mennta- og menningarmálaráðherra og varaformanni Framsóknarflokksins, og Sigurði Hannessyni, einum helsta trúnaðarmanni Sigmundar Davíðs á undanförnum árum og í dag framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Auk þess hafi hann hitt fyrrverandi framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins, Hrólf Ölvisson, á Kaffi Mílanó í Skeifunni á fundi til að ræða hugsanlega aðkomu Viðars að kosningabaráttu Framsóknarflokksins.
Hrólfur hafði sjálfur verið í Panama-skjölunum og neyðst til að segja af sér sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins í lok apríl 2016. Þegar Hrólfur sagði af sér kom m.a. fram í tilkynningu frá honum að drægi sig í hlé „til að koma í veg fyrir að rýrð verði kastað á Framsóknarflokkinn og þau góðu störf sem hann hefur unnið að í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég er ekki kjörinn fulltrúi en tel þetta engu að síður rétta ákvörðun."
Vitnisburðir sem raktir eru í dómi héraðsdóms sýna þó að hann var enn mjög virkur í stýringu flokksins á þessum tíma þrátt fyrir afsögn. Þar rekur Viðar til að mynda að hann hafi sagt að sú kosningabarátta sem hann hefði í huga gæti kostað um 100 milljónir. „Lýsti Viðar því fyrir dómi að Hrólfur hafi fengið ,,áfall“ við að heyra töluna sem hefði þó verið sett fram í hálfkæringi. Í vitnisburði sínum fyrir dómi kvaðst Hrólfur hafa upplýst Viðar um það á fundinum að Framsóknarflokkurinn ætti ekki slíka fjármuni.“
Tóku upp ræðuna á miðstjórnarfundinum
Viðar og Sigmundur Davíðs hittust skömmu síðar og ákváðu að gera eftirfarandi: að taka betri myndir af Sigmundi Davíð förðuðum og reyna að koma þeim að á fjölmiðlum og að setja á fót tvær heimasíður sem vörðu og/eða studdu Sigmund Davíð persónulega.
Viðar skrifaði í kjölfarið bréf til framkvæmdastjórnar Framsóknarflokksins þar sem fyrirhuguð störf hans fyrir flokkinn voru útlistuð. Bréfið afhenti hann Sigmundi Davíð, þáverandi formanni flokksins sem var í nokkurs konar leyfi frá störfum, og Hrólfi Ölvissyni, sem gegndi ekki lengur formlegu starfi hjá Framsóknarflokknum. Það bréf barst aldrei til framkvæmdastjórnar flokksins.
Síðar bættist eitt verkefni við hjá Viðari. Það verkefni snerist um myndatöku á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins á Akureyri í byrjun september 2016. Maður á vegum Viðars tók upp ræður sem þar fóru fram og klippti úr efninu myndbönd sem voru notuð á Facebook-síðu Framsóknarflokksins. Sigmundur Davíð flutti rúmlega klukkutíma langa ræðu á umræddum fundi studdur glærum með sterku myndmáli þar sem hann fór yfir stöðu stjórnmála, árangur sinn og það sem hann taldi vera þaulskipulagða aðför að sér. Þátttakendur í þeirri meintu aðför voru stórir leikendur í alþjóðafjármálakerfinu og fjölmiðlar víða um heim. Hægt er að sjá brot úr ræðunni hér að neðan:
Sá sem tók upp myndefnið og klippti sagði í vitnisburði sínum að efnið em hann hafi útbúið hafi aðeins verið fyrir „kosningaherferð Sigmundar“. Hann hafi einungis tekið myndir af Sigmundi Davíð á þinginu, engum öðrum.
Í kjölfar fundarins tilkynnti Sigurður Ingi Jóhannsson, sem var þá varaformaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, að hann treysti sér ekki til að starfa áfram sem varaformaður vegna samskiptaörðugleika í forystu flokksins. Á flokksþingi í byrjun október 2016 felldi Sigurður Ingi Sigmund Davíð síðan naumlega í formannskosningu.
Taldi áætlunina geta orðið árangursríka
Sigmundur Davíð var einn þeirra sem bar vitni í málinu. Í vitnisburði hans kom fram að hann hafi talið að sú áætlun sem Viðar hafði sett fram gæti orðið „árangursrík“.
Í september 2016, eftir miðstjórnarfundinn örlagaríka, sendi Viðar reikning til Framsóknarflokksins og fór fram á að fá greitt fyrir vinnu sína, vinnu Svans Guðmundssonar, húsaleigu og keyptar þjónustu af þriðja aðila.
Þegar Framsóknarflokkurinn, sem kannaðist ekki við að hafa keypt umrædda þjónustu, greiddi ekki reikninginn hafði Viðar samband við Sigmund Davíð sem lagði þá út fyrir stefnda þann hluta reikningsins sem var vegna útlagðs kostnaðar í samræmi við gefið ábyrgðarloforð sitt gagnvart stefnanda. Um var að ræða rúmlega eina milljón króna. Í tölvupósti sem Sigmundur Davíð sendi Viðari vegna þessa, og er birtur í dómnum, segir m.a. að þrátt fyrir að framkvæmdastjórar Framsóknarflokksins, og fleira fólk sem hafi komið að undirbúningi kosninganna 2016, hafi verið „meðvitaðir um hversu mikilvægt formaður flokksins taldi að hefja kosningaundirbúning í tæka tíð dróst talsvert að ganga frá fyrirkomulagi vinnunnar. Auk þess hafði fundur þinn með Hrólfi leitt í ljós að Hrólfur taldi þær hugmyndir sem þar voru kynntar of umfangsmiklar og kostnaðinn of mikinn. Brugðist var við því með því að laga umfang verkefnisins að athugasemdunum[...]Mér er ekki ljóst að hversu miklu leyti flokkurinn hefur gert upp við ykkur en skilst að enn eigi eftir að gera upp útlagðan kostnað. Í samræmi við það sem ég nefndi á sínum tíma um að ég skyldi taka ábyrgð á útlögðum kostnaði svo að verkefnið gæti haldið áfram millifæri ég nú á reikning þinn 1.090.000 kr. en það er sameiginlegur skilningur okkar að eftir sem áður sé gert ráð fyrir að flokkurinn standi straum af þeim kostnaði eins og öðrum kostnaði við undirbúning kosninga.“
Viðar hélt áfram að reyna að innheimta kröfu sína hjá Framsóknarflokknum og sendi m.a. bréf 20. janúar 2017. Í því sagði að auk ofangreindrar vinnu hefði verið gerðar „greiningar, skrifaðar blaðagreinar, unnin stefnumótunarvinna og áætlanir um hvernig helst væri hægt að ná árangri í væntanlegri kosningabaráttu, tekið var á leigu viðbótarhúsnæði sem notað var undir hina ýmsu aðila innan flokks í þessari vinnu.
Vinnan var kynnt fyrir frammáfólki í flokknum á ýmsum tímum og mismikið unnin. Meðal þeirra aðila sem mættu til fundar og kynntu sér hvaða vinnu var verið að inna af hendi má nefna fólk eins og Lilju Alfreðsdóttur, þá utanríkisráðherra, núverandi varaformann flokksins, Sigurð Hannesson, formann málefnanefndar flokksins, Sveinn Hjört Guðfinnsson formann FR [Framsóknarfélags Reykjavíkur], Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, borgarfulltrúa, Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmann SDG, SDG sjálfan og marga fleiri.“
Alls taldi Viðar sig eiga inni um 5,5 milljónir króna. Þegar Framsóknarflokkurinn hafnaði því að greiða þá upphæð höfðaði hann mál. Því máli tapaði hann í héraði í dag.
Fjölmiðli stýrt af greiddum verktaka
Forysta ehf., fyrirtækið sem Viðar stýrir og er stefnandi í málinu, er skráð fjölmiðlafyrirtæki hjá Fjölmiðlanefnd. Það rekur m.a. fjölmiðilinn Veggurinn.is. Viðar hefur sjálfur ritstýrt þeim vef og er einnig skráður ábyrgðarmaður Forystu á vef fjölmiðlanefndar. Félagið er his vegar í eigu Ólafar Sigurgeirsdóttur, eiginkonu Viðars. Það efni sem birt hefur verið sem „fréttir“ á Veggurinn.is á undanförnum árum er að mestu tvenns konar. Annars vegar jákvæðar fréttir um Sigmund Davíð og hins vegar gagnrýni á fjölmiðla sem fjallað hafa um Sigmund Davíð.
Í pistli sem birtist þar haustið 2016 spurt hvers vegna kjósendur ættu að verðlauna Framsóknarflokkinn fyrir að fella Sigmund Davíð. Þeirri spurningu var svarað með eftirfarandi hætti: „Andskotar Sigmundar Davíðs innan flokks vilja nefnilega eiga heiðurinn af öllum afrekum hans undanfarin ár en drepa hann sjálfan. Þeir vilja eiga gróðann af aflanum en fleygja skipstjóranum sem veiddi fyrir borð.“
Síðasta „frétt“ sem birtist á Veggurinn.is var gagnrýni á pistil í Stundinni þar sem slagorð byggðastefnu Miðflokksins, sem Sigmundur Davíð stofnaði í aðdraganda kosninganna 2017, var til umfjöllunar. Hvergi á Veggurinn.is er tilgreint að ábyrgðarmaður og fyrirsvarsmaður fjölmiðilsins sé greiddur verktaki fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson.
Þær tvær síður sem Viðar setti á fót sérstaklega fyrir Sigmund Davíð hétu annars vegar Islandiallt.is og hins vegar Panamaskjolin.is. Báðar voru skráðar síðsumars 2016.
Önnur, Islandiallt.is, birti jákvæðar færslur um stjórnmálamanninn Sigmund Davíð. Þar kom fram að síðan hafi verið „settur saman og rekinn af hópi einstaklinga úr ýmsum áttum með ólíkar stjórnmálaskoðanir sem eiga það sameiginlegt að vera stuðningsmenn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar“.
Hin, Panamaskjolin.is, fjallaði um skýringar Sigmundar Davíðs og eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, á Wintris-málinu svokallaða. Á undirsíðu vefsins sagði að um staðreyndir um aðkomu Sigmundar Davíðs að málinu sé að ræða. „Efni síðunnar er unnið upp úr þeim upplýsingum sem fram hafa komið um málið undanfarna mánuði, bæði frá Sigmundi og Önnu sjálfum, frá skattyfirvöldum, umboðsmanni Alþingis, endurskoðendum, fjölmiðlum og fleiri aðilum.
Efnið er sett fram í formi svara við algengum spurningum í þeirri viðleitni að það reynist einfaldara aflestrar. Vefnum er viðhaldið af stuðningsmönnum Sigmundar og Önnu“.
Forysta ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 21. mars síðastliðinn.