Fíkniefnapeningar stofnanda Silk Road fóru í gegnum Ísland

1551510_1375861799339882_1948871849_n.jpg
Auglýsing

Banda­ríkja­mað­ur­inn Ross William Ulbricht var sak­felldur fyrir dóm­stóli í New York rík­i í gær, meðal ann­ars fyrir fíkni­efna­sölu og pen­inga­þvætti í gegnum vef­síð­una Silk Road. Ákæran á hendur Ulbricht var í sjö lið­um, og var hann sak­felldur í þeim öll­um. Hund­ruð millj­ónir króna voru vistaðar á vef­þjónum vef­síð­unnar á Íslandi. Frétta­mið­ill­inn Wired greinir frá mál­inu.

Vef­síðan Silk Road var tekin niður í októ­ber árið 2013, en hún var nokk­urs konar mark­aðs­torg fyrir fíkni­efni og annan ólög­legan varn­ing. Banda­ríska alrík­is­lög­reglan (FBI) hefur sagt að vef­síðan hafi reynst þró­að­asta og umfangs­mesta mark­aðs­torg glæpa­manna á net­inu, en henni hefur verið líkt við eBay fyrir við­skipti með fíkni­efni þar sem þús­undir fíkni­efna­sala hafi selt mörg hund­ruð kíló af fíkni­efn­um.

Þá greindu fjöl­miðlar frá því að þar hafi verið að finna til sölu leið­bein­ingar um hvernig skuli brjót­ast inn í hrað­banka, listar yfir tengiliði á svarta mark­aðnum og skjala­fals­ara og þá hafi verið hægt að kom­ast í sam­band við leigu­morð­ingja í tíu löndum í gegnum vef­síð­una.

Auglýsing

Lög­reglu­yf­ir­völd á Íslandi aðstoð­uðu FBI



Þar sem síðan var vistuð hér á landi, aðstoð­aði rann­sókn­ar­lög­reglu­deild lög­reglu höf­uð­borga­svæð­is­ins banda­rísku alrík­is­lög­regl­una (FBI) við rann­sókn á starf­semi vef­síð­unn­ar. Aðstoðin var veitt á grund­velli rétt­ar­beiðni og fólst í öflun raf­rænna gagna um vef­síð­una.

Í frétta­til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Íslandi, sem send var fjöl­miðlum í kjöl­far aðgerð­anna seg­ir: „Lauk þess­ari rann­sókn­ar­að­stoð með aðgerðum hér á landi í síð­ustu viku þar sem Sil­kroad vef­síðan var tekin niður og hald­lagður raf­rænn gjald­mið­ill, Bitcoin, að jafn­virði yfir 3 millj­ónir banda­ríkja­dala. Ekki eru önnur tengsl við Ísland en þau að vef­síðan var hýst hér á landi, engar hand­tökur voru fram­kvæmdar vegna þessa hér á landi og engir inn­lendir aðilar tengj­ast að öðru leyti rekstri henn­ar.“

Áður­nefndur stofn­andi Silk Road á yfir höfði sér að minnsta kosti þrjá­tíu ára fang­els­is­dóm, en lög­menn hans segja að dómnum verði áfrýj­að.

FBI fann fúlgu fjár í gegnum vef­þjón á Íslandi



Ul­bricht var hand­tek­inn í San Francisco í októ­ber 2013, og þá lagði lög­regla jafn­framt hald á far­tölv­una hans. Við aðal­með­ferð máls­ins kom fram hvernig full­trúar FBI röktu 13,4 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sem sam­svarar tæp­lega 1,8 millj­örðum króna, í formi Bitcoin raf­myntar í gegnum vef­þjóna vef­síð­unnar á Íslandi og Penn­syl­vaníu í Banda­ríkj­unum yfir í „raf­veski“ Ulbricht sem var aðgengi­legt í gegnum far­tölvu hans. Veskið var það sönn­un­aragn sem vó þyngst í sak­fell­ingu stofn­anda Silk Road, en raf­myntin var milli­færð inn í það frá vef­þjón­unum á Íslandi og í Banda­ríkj­un­um.

Sam­kvæmt frétt Vísis frá 9. októ­ber voru gögn Silk Road hér á landi vistuð í gagn­va­veri Thor sem rekið er af Advania.

Við fyr­ir­töku máls­ins krafð­ist verj­andi Albricht þess að sönn­un­ar­gögn sak­sókn­ara yrðu úti­lokuð frá rétt­ar­höld­unum þar sem FBI hefði kom­ist yfir þau með ólög­legri og til­hæfu­lausri leit á vef­þjónum Silk Road á Íslandi til að stað­setja tölvu höf­uð­paurs­ins.

Albricht not­að­ist við ­for­ritið Tor til að fela slóð sína, en for­ritið hefur verið bendlað við hið svo­kall­aða „myrkra­net“ eða „Dark Web,“ þar sem not­endur for­rit­is­ins geta athafnað sig á inter­net­in­u ­eft­ir­lits­laust.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÆgir Þór Eysteinsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None