Segir söluna á útgáfunni hafa komið sér mjög á óvart - hefur enn ekkert heyrt í Birni Inga

525181_10201068791621356_1112002431_n-1.jpg
Auglýsing

Ingi­mar Karl Helga­son, rit­stjóri Reykja­víkur viku­blaðs, segir söl­una á útgáfu­fé­lag­inu Fótspori hafa komið sér í opna skjöldu. „Fréttir gær­dags­ins um að útgáfa blaðs­ins hefði verið seld til Vef­pressunnar komu mjög á óvart. Satt að segja hafði útgef­and­inn fyrr­ver­andi nýlega talað um að fjölga síðum í Reykja­vík viku­blaði með haustinu og hef ég heldur verið að hugsa á þeim nótum en öðr­um.“

Þannig hljómar pist­ill sem Ingi­mar Karl skrifar inn á vef­síðu viku­blaðs­ins undir fyr­ir­sögn­inni: Kveðja frá rit­stjóra. „Það blasir við að góðir hlutir hafa verið að ger­ast á Reykja­vík viku­blaði og raunar ýmsum öðrum blöðum Fótspors­út­gáf­unn­ar. Svo til allir aðrir fjöl­miðlar hafa tekið upp fréttir úr næstum hverju ein­asta tölu­blaði Reykja­víkur viku­blaðs allra síð­ustu miss­er­in. Við­brögð les­enda við efn­is­tökum okkar og umfjöllun í Reykja­vík viku­blaði hafa jafn­framt verið mjög mik­il,“ skrifar rit­stjór­inn frá­far­andi.

„Yf­ir­leitt eru þau jákvæð og fólk hefur lýst mik­illi ánægju með gagn­rýna, mál­efna­lega og sann­gjarna blaða­mennsku. Við­brögð úr sumum afkimum ráð­andi afla hafa líka styrkt okk­ur í þeirri trú að við höfum verið að gera eitt­hvað sem skiptir máli. Ég held satt að segja að þessi ­stað­reynd hafi gert að verkum að útgáfu­fyr­ir­tækið Fót­spor hafði eitt­hvað til að selja þegar allt kemur til alls, hvernig sem á það er lit­ið.“

Auglýsing

Í sam­tali við Kjarn­ann kveðst Ingi­mar Karl ekk­ert hafa heyrt frá Birni Inga Hrafns­syni stjórn­ar­for­manni Vef­pressunn­ar, né öðrum hjá félag­inu. „Það eina sem ég veit er að frjóu og skemmti­legu tíma­bili Reykja­víkur viku­blaðs hjá útgáf­unni Fótspori er lok­ið. Ég veit ekki hvað tekur við. Hvorki hjá mér sjálf­um, né hvað verður með blað­ið. Ég frétti þetta bara í gær.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None