Sjötti hver háskólamaður segist hafa komið sér hjá því að tjá sig við fjölmiðla vegna ótta við viðbrögð valdafólks úr stjórnmála- og efnahagslífi. Þá telur meirihluti aðspurðra háskólamanna að akademísku frelsi fræði- og vísindamanna á Íslandi stafi ógn af gagnrýni eða hótunum frá valdafólki í stjórnmálum og efnahags- og atvinnulífi. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar um viðhorf háskólafólks til þátttöku í opinberri umræðu á vettvangi fjölmiðla.
Ádrepa í rannsóknarskýrslu
Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis hefur að geyma ádrepu á störf háskólasamfélagsins í aðdraganda falls íslenska bankakerfisins. Þar er háskólafólki legið á hálsi að hafa ekki haft uppi næga gagnrýni á ástand mála en jafnframt er þó bent á að aðstæður til gagnrýninnar umræðu í samfélaginu hafi verið bágbornar.
Sérstök þingmannanefnd, sem skipuð var fulltrúum allra flokka sem áttu sæti á Alþingi á síðasta kjörtímabili, vann sjálf skýrslu um rannsóknarskýrsluna. Í meginniðurstöðum og ályktunum þingnefndarinnar er sérstaklega vikið að samfélagsumræðu á Íslandi og bent á að góð stjórnmálaumræða náist fram „með því að láta andstæð sjónarmið mætast þar sem byggt er á staðreyndum og málin eru krufin til mergjar. Íslensk stjórnmál hafa ekki náð að þroskast nægilega í samræmi við það“. Í skýrslunni er jafnframt að finna hvatningu til háskólafólks „af ólíkum fræðasviðum til að taka þátt í opinberri umræðu og styrkja með því tengsl fræðasamfélagsins, atvinnulífsins og hins almenna borgara“.
Hvatningin til háskólafólks byggist á þeirri hugmynd að þessi hópur hafi fram að færa einhverja þekkingu eða reynslu, umfram aðra borgara, sem nýst geti í hinni lýðræðislegu umræðu. Sú þekking eða reynsla getur jafnvel varpað nýju ljósi á ýmis málefni í samfélaginu og stuðlað að því að rökstuddar og yfirvegaðar ákvarðanir séu teknar í mikilvægum samfélagsmálum. Hvatningin hvílir líka á þeirri hugmynd að innan háskólanna starfi fólk sem hafi það að markmiði að afla nýrrar þekkingar eða leita „sannleikans“, eins og það er stundum nefnt, með aðferðum vísindanna sem byggjast á gagnrýninni hugsun.
Þetta er örstutt útgáfa af ítarlegri úttekt um rannsókn Björns Gíslasonar. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarnanum hér.