Knattspyrnuáhorfendur ekki færri í fimmtán ár

Laugardalsvollur-4.jpg
Auglýsing

Ef Íslands­mót­inu í knatt­spyrnu myndi ljúka í dag, eftir 21. umferð, væri með­al­tals­að­sókn á leiki í efstu deild karla sú lægsta frá árinu 1999. Alls hafa 898 manns horft á hvern leik deild­ar­innar að með­al­tali nú þegar ein umferð er eftir af henni. Sum­arið 2013 voru þeir 1.057 að með­al­tali og því hefur með­al­tals­að­sókn dreg­ist saman um 15 pró­sent á milli ára. Hald­ist þessi með­al­tals­að­sókn í síð­ustu umferð deild­ar­innar verður það í fyrsta skipti síðan árið 2002 sem hún fer undir 1.000 manns á leik.

[visu­alizer id="8254"]

Stór­leikur gæti lagað stöð­una



Kjarn­inn hefur talið saman þann fjölda sem mætt hefur á þá 126 leiki sem þegar hafa verið leiknir í Pepsí-­deild karla í sumar sam­kvæmt leik­skýrslum sem birtar eru á vef KSÍ. Alls eru upp­gefnar áhorf­enda­tölur í 121 leikj­anna og tölur úr hinum fimm leikj­unum var hægt að nálg­ast í ann­ars vegar umfjöll­unum Frétta­blaðs­ins og hins vegar Morg­un­blaðs­ins. Alls hafa 113.171 áhorf­endur mætt á leik­ina 126, eða 5.389 að með­al­tali í hverri umferð. Það gerir 898 manns á hvern leik.

Allar líkur eru á því að með­al­talið eigi eftir að hækka þar sem áhorf­endur flykkj­ast vana­lega á loka umferð deild­ar­inn­ar. Í ár fer auk þess fram hreinn úrslita­leikur FH og Stjörn­unnar um Íslands­meist­ara­tit­ill­inn í Kaplakrika á laug­ar­dag. Búist er við að fimm til sex þús­und áhorf­endum mæti á leik­inn. Þeir gætu því orðið fleiri á þessum eina leik en áhorf­endur á alla sex leiki hverrar umferðar hafa verið á leiki í Pepsí-­deild­inni að með­al­tali til þessa. Aðsókn­ar­mesti leikur móts­ins hingað til er leikur KR og Vals í fyrstu umferð, sem fór fram á Gervi­gras­vell­inum í Laug­ar­dal, en 2.128 áhorf­endur mættu á hann.

Auglýsing

„Annað atriði er veð­ur­far í Íslandi í sumar bæt­ist ofan á þetta. Veðrið hefur verið mjög slæmt eig­in­lega í allt sum­ar. Það var ekk­ert sér­stak­lega gott í fyrra, en það er búið að vera enn verra núna. Sér­stak­lega á leik­dög­um, það hefur hitt þannig á að það hefur verið mjög slæmt á þeim."

Verði þessi spá um áhorf­enda­fjölda í Kaplakrika á laug­ar­dag að veru­leika gæti Íslands­metið í fjölda áhorf­enda á einum leik verið sleg­ið. Það var sett í Frosta­skjóli þegar ÍBV tryggði sér Íslands­meist­ara­tit­il­inn á móti KR í loka­um­ferð móts­ins árið 1998, en þá mættu um 5.400 manns á völl­inn.

Í sumar mættu fæstir áhorf­endur mættu á leik Vals og Þórs sem fram fór 21. sept­em­ber. Sam­kvæmt leik­skýrslu mættu ein­ungis 145 manns á þann leik.

Gervi­grasið, veðrið og HM höfðu mest áhrif



Þórir Hákon­ar­son, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, segir það auð­vitað vera áhyggju­efni að áhorf­endum sé að fækka. Hann segir þó þrjú atriði útskýra fækk­un­ina að ein­hverju leyti. „Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu er eitt þeirra. Það hefur alltaf mikil áhrif á aðsókn. Þessi keppni sem fór fram í sumar var auk þess ein­stak­lega skemmti­leg og fékk gríð­ar­lega mikið áhorf. Annað atriði er veð­ur­far á Íslandi í sumar sem bæt­ist ofan á þetta. Veðrið hefur verið mjög slæmt eig­in­lega í allt sum­ar. Það var ekk­ert sér­stak­lega gott í fyrra, en það er búið að vera enn verra núna. Sér­stak­lega á leik­dög­um, það hefur hitt þannig á að það hefur verið mjög slæmt á þeim. Þriðja atriðið er að í upp­hafi sum­ars vorum við í vanda­málum með heima­velli lið­anna og þurftum að spila nokkra leiki á gervi­gras­inu í Laug­ar­dalnum vegna ástands vall­anna. Það hefur auð­vitað veru­leg áhrif líka. Að liðin gátu ekki leikið leikina á sínum heima­völlum heldur þurftu að spila fyrstu leik­ina í Laug­ar­daln­um.“

pepsi_deildinn_white_landscape_hirez

Þórir segir það auð­vitað alltaf vera stefnu knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar að fjölga áhorf­endum á leikjum Íslands­móts­ins. „Ég held að ég geti sagt að áhug­inn á deild­inni er ekk­ert minni en hann hefur ver­ið. Það er mikil umfjöllun um hana í öllum miðlum og sýndur mik­ill áhugi á þeim umfjöll­un­um. Ég held að áhug­inn á deild­inni sé því ekk­ert minni en þessi þrjú atriði hafa klár­lega áhrif á að fólk mætir ekki á völl­inn.“

Að sögn Þóris verður lagst yfir fækkun áhorf­enda á næstu vik­um. „Við munum taka umræðu um málið þegar tíma­bil­inu lýkur með for­svars­mönnum félag­anna. Og auð­vitað rétt­hafa deild­ar­inn­ar. Hvað sé hægt að gera til að bregð­ast við og hífa upp aðsókn­ina á ný.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None