Niðurstaða könnunar um forsetaembættið: Forsetinn áhrifavaldur og synjunarvaldið mikilvægt

Stefán Jón Hafstein hefur birt niðurstöðu könnunar sem hann framkvæmdi um hlutverk forseta Íslands.

21093513079_7919eee943_b.jpg
Auglýsing

Í óvís­inda­legri könnun sem Stefán Jón Haf­stein hef­ur fram­kvæmt innan Face­book-hóps­ins „Hlut­verk for­seta“ kemur fram að um 80 pró­sent aðspurðra telja for­seta Íslands áhrifa­vald í íslensku sam­fé­lagi eins og emb­ætt­i hans hefur þró­ast og 70 pró­sent telja mik­il­vægt að for­seti hafi synj­un­ar­vald. Flest­ir vilja þó að það sé notað var­lega eða aðeins í örygg­is­skyni. Þrátt fyrir mik­inn ­stuðn­ing við synj­un­ar­valdið telja flestir þeirra sem svara könnun Stef­áns Jóns að leik­reglur um beit­ingu þess séu óskýrar og meiri­hluti telur að ­synj­un­ar­valdið eigi heima hjá bæði þjóð og for­seta. Um 48 pró­sent þátt­tak­enda telja að for­set­inn eigi að vera áhrifa­valdur í þágu mál­efna sem hann kýs að setj­a á­odd­inn í ræðu og riti en að hann eigi ekki að blanda sér í átaka­mál líð­and­i ­stundar og um helm­ingur segir að starfstengd reynsla og per­sónu­leg­ir eig­in­leikar sem við­kom­andi telur að komi sér vel fyrir þjóð­höfð­ingja skipt­i ­jafn miklu máli þegar kemur að vali á for­seta.

Könn­un­inni var hleypt af stokk­unum með bréfi til um 250 ein­stak­linga í októ­ber sem höfðu vakið athygli Stef­áns Jóns á und­an­förnum árum „fyr­ir­ að villja leggja gott til mála“. Sam­hliða setti Stefán Jón á fót Face­book-hóp­inn „Hlut­verk for­seta“. Í bréf­inu stóð m.a. að for­seta­kosn­ing­arnar á næsta ári get­i ­markað tíma­mót í stjórn­mála­menn­ingu Íslands. „For­­set­i Ís­lands er áhrifa­­vald­­ur, afstaða hans til sam­­fé­lags­­mála er mik­il­væg eins og ráða má af fram­­göngu allra þeirra sem gegnt hafa emb­ætt­inu á lýð­veld­is­­tím­an­­um. Því miður er staðan sú að stjórn­­­ar­­skrá­in gef­ur tals­vert svig­­rúm til­ frjáls­­legr­ar túlkn­un­ar á hlut­verki og fram­­göngu for­­seta. Næsti for­­set­i Ís­lands þarf að hafa skýrt umboð til að tala máli al­­manna­hags­muna og beita á­hrif­um emb­ætt­is­ins til góðs“.

Í gegnum Face­book-hóp­inn „Hlut­verk ­for­seta“ hefur Stefán Jón síðan safnað saman svörum við ýmsum spurn­ingum er varða hlut­verk for­set­ans á und­an­förnum vik­um. Hann hefur nú tekið svörum við þessum spurn­ingum saman og birt. Alls tóku um sjö hund­ruð manns þátt í könn­un ­Stefán Jóns og var þátt­taka val­frjáls. Þ.e. þátt­tak­endur voru ekki valdir með­ slembi­úr­taki. Því er ekki um félags­vís­inda­lega önnun að ræða og svörin ekki ­töl­fræði­lega mark­tæk fyrir þjóð­ina alla. Til­gangur könn­un­ar­innar var enda sá að kanna afstöðu þess hóps sem þátt tók til nokk­urra lyk­il­spurn­inga og í sam­an­tekt ­sem Stefán Jón hefur sent frá sér vegna hennar seg­ir: „Í flestum til­vikum er um mjög afger­andi afstöðu að ræða hjá hópnum svo könn­unin gefur býsna skýra mynd af því hvernig þessir áhuga­menn meta emb­ætt­ið“.

Auglýsing

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar má ­lesa í heild sinni hér.

Stefán Jón hefur ítrek­að verið orð­aður við fram­boð til for­seta Íslands, en fimmta kjör­tíma­bili Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar lýkur á næsta ári. Hann upp­lýsir þó ekki um hvort hann ætli sér að láta af því verða, hvorki í nið­ur­stöðu­skjal­inu né í aðsendri ­grein sem birt­ist í dag á Kjarn­an­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None