Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían, ÍKSA, segist í yfirlýsingu síst af öllu vilja standa í deilum við 365, en augljóst sé að Jón Gnarr, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365, sé að misskilja ýmislegt varðandi Edduna. Greint var frá því í dag að 365 hefði sagt sig frá þátttöku í Eddunni þetta árið.
Jón sagði fyrr í dag að RÚV hefði verið með 70 prósent vægi í dómnefnd Eddunnar en 365 beri á sama tíma helming af kostnaði hátíðarinnar, þar sem verðlaunað er fyrir það sem best er gert í sjónvarpi og kvikmyndagerð á Íslandi. Auk þess hafi hugmyndir 365 um að auka vægi almennings við kjör ekki náð fram að ganga.
Í yfirlýsingunni, sem Hilmar Sigurðsson, formaður ÍKSA, og Brynhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri, skrifa undir, segjast þau ekki hafa náð sambandi við Jón til að leiðrétta misskilning hans. Allar þrjár fullyrðingar hans um Edduna, sem Kjarninn fjallaði um í frétt fyrr í dag, væru rangar.
Þau segja það „fjarstæðukennt“ að tala um að sjötíu prósent valnefndarmanna séu á einhvern hátt tengdir RÚV. Þá hafi 365 ekki greitt nema 15 prósent af rekstrargjöldum ÍKSA á síðasta ári, en hafi auk þess greitt fyrir útsendingarréttinn á Eddunni. Sé það tekið með í reikninginn hafi 365 greitt um þriðjung af rekstrargjöldum.
Einnig segir í yfirlýsingunni að engar tillögur hafi verið lagðar fram af 365, þar sem lagt er til að vægi almennings við kjör verði aukið.
Yfirlýsing Hilmar og Brynhildar, vegna ummæla Jóns Gnarr, fer hér að neðan í heild sinni.
1. Að RÚV hafi 70% vægi í dómnefnd Edduverðlauna.
Verk sem send eru inn í Edduverðlaunin fara í gegnum tvær kosningar og engin dómnefnd starfar á vegum Eddunnar. Látum það liggja á milli hluta og skoðum hverjir kjósa.
Í fyrsta lagi eru öll innsend verk metin af fjórum valnefndum Eddunnar. Ein valnefndin tilnefnir leikið efni, önnur sjónvarpsefni, þriðja heimildamyndir og sú fjórða tilnefnir einstaklinga til fagverðlauna Eddunnar. Sjö aðilar eiga sæti í hverri valnefnd, alls 28 manns. Valnefndarmenn sitja aðeins eitt ár í senn og hægt er að skoða hverjir sitja í valnefndunum á vefsíðunni eddan.is. Það er fjarstæðukennt að 70% valnefndarmanna séu á einhvern hátt tengd RÚV.
Í öðru lagi þá kjósa svo meðlimir Akademíunnar á milli tilnefndra verka, þ.e.um það hver hlýtur Edduna í hverjum flokki fyrir sig. Meðlimir akademíunnar eru 562 talsins, allt íslenskt fagfólk úr kvikmynda- og sjónvarpsbransanum. Öllum er séð fyrir opnum og óheftum aðgangi að öllum verkunum meðan á kosningu stendur.
Akademíuaðildin er með öllu einstaklingsbundin og ekki tengd fyrirtækjum og hvernig Jón tengir 70% aðildarfélaga ÍKSA við RÚV er beinlínis óskiljanlegt. Félagsskrá ÍKSA er aðgengileg á vefsíðunni eddan.is. Til gamans má geta að þeir aðildarfélagar ÍKSA sem eru með skráð RÚV netföng eru 22 talsins en þeir sem eru með skráð netföng hjá 365 miðlum eru 19 talsins.
2. Að 365 beri helming kostnaðar vegna veitingu Edduverðlauna.
Aðildar- og innsendingargjöld 365 á síðasta ári námu 15% af heildarrekstrargjöldum ÍKSA.
Að auki keyptu 365 miðlar útsendingarrétt frá verðlaunahátíðinni og ef sá kostnaður er tekin með nam framlag 365 alls 33% af heildarrekstrarkostnaði ÍKSA.
3. Að 365 hafi lagt fram ýmsar tillögur um að auka vægi almennings í kjöri á verðlaunahöfum sem ekki hafi hlotið brautargengi.
Engin slík tillaga (hvað þá ýmsar) hafa verið lagðar fram af 365. Fagráð Eddunnar, þar sem fulltrúar 365 hafa setið, tekur allar ákvarðanir um fyrirkomulag Edduverðlaunanna. Allar fundargerðir Fagráðs eru opinberar og aðgengilegar á eddan.is.
Rétt er að vekja athygli á því að Edduverðlaunin eru fagverðlaun en ekki vinsældarkosning og fyrirkomulag Eddunnar er sambærilegt við fyrirkomulag annarra verðlaunahátíða um allan heim, svo sem Óskarsverðlaunanna.
Í þessu sambandi viljum við líka vekja athygli á því að til skamms tíma voru ein verðlaun Eddunnar kosin í almennri símakosningu áhorfenda, þ.e. sjónvarpsmaður ársins. Aðeins eru tvö ár síðan þessu var breytt úr almenningskosningu í fagkosningu, að kröfu 365. Rökin voru þau að það væri fag að vera sjónvarpsmaður/þáttastjórnandi en ekki vinsældarkosning og jafnframt að áskriftarsjónvarp gæti aldrei unnið vinsældarkosningu meðal alls almennings.
Með vinsemd, Hilmar Sigurðsson, formaður ÍKSA. Brynhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Eddunnar.