Fimm til viðbótar handteknir í Brussel í aðgerðum í nótt

Cameron og Hollande funduðu í París í morgun vegna hryðjuverkaógnar. Búið að handtaka 21 í Belgíu.

brussel hryðjuverk
Auglýsing



Bretar munu taka þátt í hern­að­ar­að­gerðum gegn Íslamska rík­inu ef David Cameron for­sæt­is­ráð­herra fær sínu fram­gengt. Hann hyggst leggja fram til­lögur fyrir þingið í næstu viku. Þá hefur hann boðið Frökkum afnot af her­stöð Breta á Kýp­ur. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi Cameron og Francois Hollande Frakk­lands­for­seta, en þeir fund­uðu í París í morg­un. Þeir heim­sóttu einnig Bataclan, tón­leika­stað­inn þar sem flestir lét­ust í hryðju­verka­árás­unum fyrir rúmri viku. 

Hollande sagði að Frakkar ætl­uðu sér að auka við loft­árásir sínar gegn Íslamska rík­inu til þess að valda sem mestum skaða. Þá hefur flug­móð­ur­skipið Charles de Gaulle verið und­ir­búið til að taka þátt í árás­un­um, en skipið er nú þegar undan ströndum Sýr­lands. Frakkar ætli sér að halda áfram vinnu við að ná póli­tískri lausn í Sýr­landi, en sagði að Bashar al-Assad Sýr­lands­for­seti gæti ekki gegnt neinu hlut­verki í fram­tíð lands­ins. Hann sagði jafn­framt að það væri þörf á því að öll Evr­ópu­sam­bands­ríkin ynnu saman gegn hryðju­verk­um. 

Auglýsing



Brus­sel enn á hæsta við­bún­að­ar­stigi 

Sextán ein­stak­lingar voru hand­teknir í Belgíu í gær, á öðrum degi viða­mik­illa aðgerða lög­reglu og hers­ins í tengslum við hryðju­verkin í París og gruns um áætluð hryðju­verk í Brus­sel. Ráð­ist var inn á nítján staði í aðgerðum gær­kvölds­ins, en grun­aði hryðju­verka­mað­ur­inn Salah Abdeslam náð­ist ekki. 

Um hádegi greindi sak­sókn­ari í Brus­sel frá því að fimm til við­bótar hefðu verið hand­teknir í frek­ari aðgerðum í nótt. 

Enn er hæsta við­bún­að­ar­stig í gildi í Brus­sel, en ástandið verður end­ur­metið síð­deg­is. Inn­an­rík­is­ráð­herra Belg­íu, Jan Jambon, segir að aðgerðum lög­reglu og hers sé ekki lokið og muni halda áfram næstu klukku­stundir og daga. Of snemmt væri að segja til um það hvort hættan á hryðju­verkum sé minni en hún var um helg­ina. Ástandið sé mjög við­kvæmt. 

Allir skólar og neð­an­jarð­ar­sam­göngur í Brus­sel eru lok­aðar í dag, en stræt­is­vagnar ganga og sumar versl­anir og heil­brigð­is­stofn­anir eru opn­ar. 

Eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd Mattew Bello Garrido af Grand Place í mið­borg Brus­sel eru fáir á ferli. 

Öllum heim­sóknum til NATO aflýst 

Höf­uð­stöðvar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) eru opnar en hluti starfs­fólks­ins var beð­inn um að vinna að heiman í dag. Þá hefur öllum heim­sóknum í höf­uð­stöðv­arnar verið aflýst, að sögn Reuters. Allar helstu stofn­anir Evr­ópu­sam­bands­ins eru líka opnar en mikil örygg­is­gæsla er alls stað­ar. 

Á lest­ar­stöðvum í Brus­sel hefur verið tekið upp landamæra­eft­ir­lit á nýjan leik og ekki er hægt að kaupa lest­ar­miða úr borg­inni án þess að sýna vega­bréf. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None