Obama og Hollande: Samstarf er lykillinn að árangri í hernaðaraðgerðum

Barack Obama forseti Bandaríkjanna og Francois Hollande forseti Frakklands áttu fund í dag. Þeir segjast ætla að efla samtarf til að vinna gegn hryðjuverkaógan.

Francois Hollande
Auglýsing

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði að loknum fundi sínum með Francois Hollande, for­seta Frakk­lands, í Was­hington DC í dag, að nauð­syn­legt væri að efla sam­starf við Frakka til að berj­ast gegn hryðju­verka­sam­tökum eins og íslamska rík­inu (Da­es­h), en ekki síður til að vinna heild­rænt að örygg­is­málum í heim­in­um. Upp­lýs­inga­flæði þyrfti að grund­vall­ast af trausti og sam­vinnu á mörgum sér­fræðisvið­um. „Aukið sam­starf við Frakka er lyk­ill­inn að árangri,“ sagði Obama, en Hollande hafði áður ítrekað svipuð skila­boð. 

Hollande sagði mik­il­vægt fyrir þjóðir heims­ins að átta sig á hætt­unni sem fylgdi íslamska rík­inu og upp­gangi þess, einkum í Írak og Sýr­land. Aðferðir hryðju­verka­manna væru ómann­úð­legar og ögrun við mann­kyn­ið. Það væri óhjá­kvæmi­legt að berj­ast af hörku gegn þessum upp­gangi, og ekki síður gegn tengsla­neti manna sem til­heyrðu hryðju­verka­sam­tökum og væru til­búnir að beita vopnum gegn sak­lausu fólki. „Hver mín­úta getur skipt máli í þeirri vinn­u,“ sagði Hollande, og ítrek­aði að hann ætl­aði sér að halda áfram að beita sér fyrir auknu sam­starfi þjóða heims­ins. Hann mun funda með Ang­elu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, á morg­un, Vladímir Pútín, for­seta Rúss­lands, skömmu fyrir mán­að­ar­mót­in, og fleiri þjóð­ar­leið­tög­um, sem geta lagt sitt af mörkum með hern­að­ar­að­gerð­um.

Hollande hefur opin­ber­lega lýst yfir stríði gegn íslamska rík­inu (Da­esh) eftir að hryðju­verka­menn myrtu 130 manns og særðu hund­ruð til við­bót­ar, í árásum í París 13. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Gríð­ar­lega umfangs­miklar lög­reglu­að­gerðir eru enn í gangi í Frakk­landi, Belg­íu, Þýska­landi og víð­ar, sem miða að því að draga úr hryðju­verkaógn, upp­lýsa um alla þætti sem tengj­ast árás­unum og ná þeim sem að árás­unum stóðu. Sam­hlið eru hern­að­ar­að­gerðir í Sýr­landi við­var­andi og er loft­árásum beitt gegna víga­mönnum íslamska rík­is­ins.

Auglýsing



Obama ítrek­aði í máli sínu að 65 þjóðir heims­ins væru nú að vinn saman að aðgerðum í Sýr­landi sér­stak­lega, en einnig í Írak og Afganist­an. Rúss­land og Íran væru í sam­vinnu með stjórn­ar­her Assads í Sýr­landi, en það væri mikið kapps­mál að Rússar kæmu í sam­starf með banda­lagi þjóð­anna 65 sem væru að starfa sam­an. Assad væri ekki treystandi, og því þyrftu Rússar að taka í sátta­hönd alþjóða­sam­fé­lags­ins svo að sam­eig­in­legar aðgerðir gætu haf­ist. 

Hollande tók undir þetta, og sagði það kapps­mál að auka sam­vinnu í hern­að­ar­að­gerð­um. Þannig væri best tryggt að hryðju­verka­menn næðu ekki að ógna almenn­ing­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None