Spennan magnast milli Rússa og Tyrkja - Eftirlifandi flugmaður segist hafa verið í lofthelgi Sýrlands

Vladímir Pútín
Auglýsing

Flug­maður sem komst lífs af, þegar her­þota rúss­neska hers­ins var skotin niður af tyrk­neska hernum í fyrra­dag, segir það af og frá að tíu til tólf við­var­anir hafi borist, eins og yfir­völd í Tyrk­landi hafa haldið fram, og svo sé það ekki rétt að þotan hafi verið skotin niður í Tyrk­landi, heldur hafi það gerst í loft­helgi Sýr­lands. Þar hafi rúss­neski her­inn verið á und­an­förnum vikum í sam­vinnu við stjórn­ar­her Sýr­lands, undir stjórn Assad for­seta, og því hafi engin alþjóða­lög verið brot­in.

Þetta kemur fram á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC en Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, hefur sagt að fram­ferði Tyrkja sé hrein ögrun við Rússa, og það skipu­lögð ögrun. Vladímir Pútín for­seti Rúss­lands er sagður æfur vegna atburð­ar­ins, og er sjálf­stæð rann­sókn nú í gangi á vegum Rússa, en þeir halda því fram að Tyrkir hafi verið órétti þegar þotan var skotin nið­ur. Pútín hefur sagt að þessi aðgerð Tyrkja muni hafa „al­var­legar afleið­ing­ar“ í för með sér. 

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, lét hafa eftir sér á blaða­manna­fundi í gær, að Tyrkir væru í fullum rétti að verja sína loft­helgi og því væri ekki hægt að segja að þetta hafi verið rangt hjá Tyrkj­um. Þá hefur Atl­ants­hafs­banda­lagið NATO einnig lagt blessun sína yfir aðgerðir Tyrkja, og ítrek­aði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri, þá afstöðu í gær.

Auglýsing

Kon­stantin Murakht­in, sá sem komst lífs af eftir tólf tíma björg­un­ar­að­gerðir sér­sveita rúss­neska hers­ins, sagði í við­tali við fjöl­miðla í Rúss­landi í morg­un, að hann þekkti vel til á þeim slóðum þar sem hann var á flugi ásamt félaga sín­um, og það væri alveg öruggt að hann hefði ekki verið í loft­helgi Tyrk­lands, „ekki einu sinni í eina sek­únd­u“. Vélin var skotin nær alveg á landa­mærum Tyrk­lands og Sýr­lands, en eins og að framan greinir þá er hart deilt um hvoru megin vélin var í loft­helg­inni.



Rússar hafa haldið uppi loft­árásum í Sýr­landi, við hlið stjórn­ar­hers­ins, und­an­far­inn mánuð og segj­ast fyrst og fremst ein­blína á íslamska ríkið sem helsta óvin. Frakk­ar, Bretar og Banda­ríkja­menn, ásamt banda­lagi fleiri þjóða, berj­ast einnig gegn íslamska rík­inu en eru ekki til­búin að styðja stjórn­ar­her Sýr­lands á meðan Assad er við stjórn­völ­inn. Honum sé ekki treystand­i. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None