Þeir sem styðja Framsókn líklegastir til að búa í eigin húsnæði

Húsnæði í Reykjavík
Auglýsing

Þeir sem styðja rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru lík­legri til þess að búa í eigin hús­næði en þeir sem styðja hana ekki. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. 78 pró­sent stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar búa í eigin hús­næði en 66 pró­sent þeirra sem styðja hana ekki. 

83 pró­sent þeirra sem styðja Fram­sókn­ar­flokk­inn búa í eigin hús­næði og 78 pró­sent þeirra sem styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Eitt helsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var að leið­rétta verð­tryggð hús­næð­is­lán, og leið­rétt­ingin svo­kall­aða var fram­kvæmd af rík­is­stjórn­ar­flokk­un­um. 

77 pró­sent þeirra sem styðja VG búa í eigin hús­næði og 74 pró­sent stuðn­ings­manna Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. 53 pró­sent Bjartrar fram­tíðar og 54 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata búa í eigin hús­næð­i. 

Auglýsing

Eldra fólk býr í eigin hús­næði, unga fólkið leigir og býr hjá for­eldrum

Fólk yfir fimm­tugu er lík­legra til að búa í eigin hús­næði en aðrir ald­urs­hóp­ar. Til dæmis sögð­ust 94 pró­sent fólks á aldr­inum 50 til 67 ára búa í eigin hús­næði en 77 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 30 til 49 ára og 28 pró­sent þeirra sem eru 18 til 29 ára. 

Í yngsta ald­urs­hópnum segj­ast 36 pró­sent vera á leigu­mark­aði og jafn­stór hópur býr í for­eldra­hús­um. 

Meðal þeirra sem eru 30 til 49 ára er hlut­fall eig­enda orðið 77 pró­sent, en 22 pró­sent eru á leigu­mark­að­i. 



Tekju­lægsta fólkið á leigu­mark­aði

Meðal þeirra sem hafa heim­il­is­tekjur undir 250 þús­und krónum á mán­uði býr 30 pró­sent í eigin hús­næði, en stærsti hóp­ur­inn, 45 pró­sent, er á leigu­mark­aðn­um. 24 pró­sent þessa hóps býr í for­eldra­hús­um. 

54% þeirra sem hafa 350 til 399 þús­und krónur í tekjur á mán­uði búa í eigin hús­næði en 26 pró­sent eru á leigu­mark­aði og 19% í for­eldra­hús­um. 

Hlut­fall þeirra sem búa í eigin hús­næði hækkar upp­fyrir 70 pró­sent í næstu tekju­flokkum og fer í 83 pró­sent hjá þeim sem eru með 800 til 999 þús­und á mán­uði í heim­il­is­tekj­ur. 

Athygli vekur að ell­efu pró­sent þeirra sem eru með yfir milljón á mán­uði í heim­il­is­tekjur á mán­uði segj­ast búa í for­eldra­hús­um. 11 pró­sent þessa hóps er á leigu­mark­aði og 78 pró­sent eru í eigin hús­næð­i. 

Færri í eigin hús­næði en áður 

MMR gerði aðra könnun á hús­næði fólks árið 2013 og séu kann­an­irnar bornar saman hefur þeirm sem búa í eigin hús­næði fækkað um þrjú pró­sent og þeim sem búa í leigu­hús­næði fjölgað um tvö pró­sent. Báðar þessar breyt­ingar eru þó innan vik­marka.  

Vik­mörk í könn­un­inni eru 3,1 pró­sent, sem þýðir að miðað við 1000 svar­endur geti raun­veru­legar tölur verið á bili sem er 3,1 pró­sentum lægra til 3,1 pró­sentum hærra en í könn­un­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None