Sigmundur Davíð svarar Degi B.: Reiknar með svipuðum áherslum á öðrum reitum

sigmundur davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur ritað borg­ar­stjór­anum Degi B. Egg­erts­syni bréf vegna upp­bygg­ingar á svo nefndum stjórn­ar­ráðs­heit, en eins og greint var frá í gær þá skrif­aði Dagur hús­meist­ara rík­is­ins, Stef­áni Thor­s, bréf þar sem talað var fyrir frið­lýs­ingu húsa á reitn­um, og að upp­bygg­ingu í takt við hús­næð­is­stefnu ríkis og borg­ar. Hann hafði þá áður skrifað for­sæt­is­ráð­herra bréf en ekki fengið svar við því.

Sig­mundur Davíð segir að for­sæt­is­ráðu­neytið sé reiðu­búið til sam­starfs við borg­ina, og ástæðu­laust sé að ótt­ast um adrif hús­anna, meðal ann­ars vegna þess að hluti þeirra sé þegar frið­að­ur. Þá geri hann ráð fyrir að borgin beiti sér með svip­uðum hætti vegna upp­bygg­ingar á öðrum reitum í borg­inni.

Bréf Sig­mundar Dav­íðs fer orð­rétt hér á eft­ir:

Auglýsing

„Vísað er til bréfs yðar, dags. 29. októ­ber sl. sem sent var Húsa­meist­ara rík­is­ins og fjöl­miðl­um. Í bréf­inu ítrek­ið þér erindi sem for­veri yðar sendi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á síð­ast­liðnu ári og varðar vilja borg­ar­innar til að eiga sam­skipti við for­sæt­is­ráðu­neytið um ­skipu­lag fram­tíð­ar­upp­bygg­ingar á vegum Stjórn­ar­ráðs­ins. For­sæt­is­ráðu­neyt­ið hefur ver­ið, og er enn, reiðu­búið til að eiga sam­starf við borg­ina um þessi mál og telur það af ýmsum ástæðum tíma­bært og æski­legt. Ráðu­neytið fagnar því áhuga Reykja­vík­ur­borgar á slíku sam­starfi. 

Ástæðu­laust er fyrir borg­ar­yf­ir­völd að ótt­ast um afdrif hús­anna þriggja sem nefnd eru í bréfum borg­ar­stjór­anna. Hús­ið við Lind­ar­götu 7 hefur verið frið­lýst og segir sig því sjálft að gild­and­i ­skipu­lag veitir ekki heim­ild til nið­ur­rifs húss­ins. Stjórn­völd hafa var­ið fjár­magni í við­gerðir á gamla Hæsta­rétt­ar­hús­inu við Lind­ar­götu 3 og hyggjast nýta það áfram. Þá stendur ekki til að rífa húsið sem stendur við Sölv­hóls­göt­u 13. 

For­sæt­is­ráðu­neytið fagnar þeirri ­stefnu­mörkun sem felst í yfir­lýstum vilja Reykja­vík­ur­borgar til að end­ur­skoða ­skipu­lag mið­borg­ar­innar með það að mark­miði að vernda sögu­leg mann­virki sem ekki njóta frið­unar vegna ald­urs.

Ráðu­neytið væntir þess að sama nálgun verð­i við­höfð við end­ur­skoðun skipu­lags á öðrum reitum í mið­borg Reykja­víkur og lít­ur svo á að í erindi borg­ar­innar felist auk þess hvatn­ing til­ ­for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um að tryggja að fleiri hús, sem ekki njóta sjálf­krafa ald­urs­frið­unar sam­kvæmt lög­um, verði varð­veitt. Ráðu­neytið mun leit­ast við að ­fylgja þeirri hvatn­ingu vel eft­ir.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None