Fjárlagafrumvarpið tekið úr nefnd í morgun - Tilbúið til annarrar umræðu

vigdís hauksdóttir - Mynd: Anton Brink
Auglýsing

Fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2016 er til­búið til ann­arrar umræðu með breyt­ing­ar­til­lögum og nefnd­ar­á­liti. Frum­varpið var tekið úr fjár­laga­nefnd eftir fund hennar fyrir hádegi í dag. Frá þessu greinir Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, í stöðu­upp­færslu á Face­book. 



Auglýsing

Kjarn­inn greindi frá því í gær að umræðum um fjár­laga­frum­varpið verður haldið áfram eftir helgi, von­andi á mánu­dag, sam­kvæmt Ein­ari K. Guð­finns­syni, for­seta Alþing­is. Þá mun hefj­ast önnur umræða um frum­varp­ið, en hún átti sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins að fara fram þann 26. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Á mánu­dag verður því komin 12 daga seinkun á starfs­á­ætl­un­inn­i. 

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, vakti athygli á því á Alþingi í gær að meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis væri ekki búin að skila af sér breyt­ing­ar­til­lögum sínum fyrir aðra umræðu fjár­lag­anna. „Þriðja umræða fjár­laga átti að fara fram í gær og maður spyr sig: Hvað veld­ur?“ Árni Páll sagði ótrú­legan skort á verk­stjórn af hálfu for­ystu fjár­laga­nefndar og rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Ég verð því að spyrja virðu­legan for­seta: Hvenær getur þá önnur umræða fjár­laga farið fram og mun for­seti ekki fara að tryggja það að for­usta fjár­laga­nefndar hætti að móðga fólk úti í bæ og fari að vinna vinn­una sína?“ 

Vig­dís sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær þegar þetta var orðið ljóst að hún væri „al­gjör­lega óstressuð yfir því“ að seinkun væri komin á afgreiðslu fjár­laga. Hún sagði það vera til þess fallið að skapa úlfúð þegar rætt væri um að umræður muni ekki stand­ast starfs­á­ætlun þings­ins og stjórn­ar­and­staðan hugsi ekki um dag­skrá þings­ins þegar hún stund­aði mál­þóf. 

Fjár­laga­nefnd hefur nú afgreitt breyt­inga­til­lögur og nefnd­ar­á­lit, sam­kvæmt því sem for­maður hennar segir á Face­book. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None