Segir að Jón Gunnarsson verði að biðjast afsökunar á fáránlegum ummælum um Björk

Dagur B. Eggertsson
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir að annað hvort biðj­ist Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður atvinnu­vega­nefnd­ar, af­sök­unar á „þessum fárán­legu ummæl­um“ um Björk Guð­munds­dóttur og dragi þau til­ baka eða hann situr uppi með ævi­var­andi skömm. Jón sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book í gær að Björk væri „frekar dauf til augn­anna á bak við grímuna“ og gagn­rýnd­i hana fyrir að hafa kallað Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, sveitalubba í við­tali við ­Sky-­sjón­varps­stöð­ina. 



Auglýsing

Jón sagð­ist játa það fús­lega að hann skilji ekk­ert í Björk og velti því fyrir sér hvort hún borgi skatta á Íslandi. „Þingið væri örugg­lega ekki verra ef þar væru fleiri með hugs­un­ar­hátt sveita­manns­ins. Nið­ur­staða loft­lags­ráð­stefn­unnar hvet­ur okkur til að nýta með skyn­sömum hætti end­ur­nýj­an­legar orku­auð­lindir lands­ins til auk­innar verð­mæta­sköp­un­ar. Nýt­ing þeirra mun skapa traustan grunn að íslensku sam­fé­lagi, tæki­færi til að gera svo mikið betur á mörgum svið­um. Ég ­reikna ekki með að Björk leggi sín lóð á þær vog­ar­skálar, eða borgar hún skatta og gjöld á Íslandi. Spyr sá sem ekki veit. Hún er frekar dauf til augn­anna á bak­við grímuna,“ sagði Jón.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.Dagur spyr í stöðu­upp­færslu í morgun hvað sé hægt að segja við svona lág­kúru. „Björk er ekki aðeins sá íslenski lista­maður sem hefur náð lengst á alþjóða­vett­vangi og sá Íslend­ingur sem vakið hefur mesta og já­kvæð­asta athygli á land og þjóð. Hún er líka skýr og afdrátt­ar­laus málsvari ­ís­lenskrar nátt­úru og umhverf­is­mála. Að hún þurfi að fá yfir sig skít og skot ­vegna þessa - og það af hinu "háa Alþingi" segir mikið um hvern­ig ­fyrir lög­gjafa­sam­komu okkar er kom­ið. Er til­gang­ur­inn að reyna að hræða fólk frá því að taka mál­stað umhverf­is­ins? Annað hvort biðst Jón Gunn­ars­son al­þing­is­maður afsök­unar á þessum fárán­legu ummælum og dregur þau til baka eða situr uppi með ævar­andi skömm. Svona gerir maður ekki.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None