Útvarpsstjóri segir stöðu RÚV galna - Illugi gaf vilyrði fyrir peningunum

Magnús Geir RÚV
Auglýsing

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri segir að það sé skýr vilji Ill­uga Gunn­ars­son­ar, mennta- og menn­ing­ar­ráð­herra, að útvarps­gjald til RÚV lækki ekki. Á opnum fundi fjár­laga­nefndar í gær­kvöldi sagði hann:„Þetta er auð­vitað algjör­lega galið, algjör­lega galin staða fyrir okkur að vera í og fyrir marga aðra. Við erum búin að vera að vinna í átta mán­uði eftir plani sem lagt var upp af ráð­herra og ráðu­neyti og við erum að gera áætl­anir þar sem þetta er fast í hendi. Við viljum fá botn í þetta, þannig að fjár­mögn­unin sé tryggð, í það minnsta til fjög­urra ára svo við þurfum ekki að standa í þessu á hverju ein­asta ári.“ Frá þessu er greint á Eyj­unni. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er, sam­kvæmt nýlegri frétt í Morg­un­blað­inu, sá sem kemur í veg fyrir að frum­varp Ill­uga  um að útvarps­gjald verði óbreytt á næsta ári, verði afgreitt úr rík­is­stjórn. Sam­kvæmt frum­varp­inu átti útvarps­gjaldið að vera áfram 17.800 krónur en ekki lækka í 16.400 krón­ur, líkt og fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyr­ir. 

Í frétt blaðs­ins sem birt­ist á mið­viku­dag sagði að frum­varpið sé mjög umdeilt í báðum stjórn­ar­flokk­un­um.Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, séu til að mynda bæði ein­dregið þeirrar skoð­unar að útvarps­gjaldið eigi að lækka. Þar var einnig haft eftir ónafn­greindum þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hann teldi að meiri­hluti þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks væri and­vígur frum­varp­inu og sömu sögu sagði ónafn­greindur þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna lögðu fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið þriðju­dag um að útvarps­gjaldið yrði óbreytt á næsta ári. Hún var felld.

Auglýsing

Tekjur RÚV munu drag­ast saman um hátt í fimm hund­ruð millj­ónir króna á næsta ári ef útvarps­gjaldið verður lækk­að. Stjórn­endur RÚV hafa sagt að þeir muni ekki geta upp­fyllt þjón­ustu­samn­ing sinn við ríkið ef af verð­ur. 

Magnús Geir sagði á fund­inum í gær­kvöldi að það myndi sjást veru­lega á dag­skrár­liðum RÚV ef gjaldið myndi lækka þar sem leikið efni á íslensku myndi minnka. Hann gaf sterk­lega í skyn að segja þyrfti upp starfs­mönnum ef af yrði þar sem launa­kostn­að­ur­inn væri stærsti útgjalda­lið­ur­inn. Sam­kvæmt Eyj­unni sagði Magnús Geir að minna íslenskt efni myndi leiða til „dó­mínó-á­hrifa“ þar sem hagn­aður af aug­lýs­inga­sölu myndi lækka í kjöl­far­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None