Eygló eini ráðherrann án aðstoðarmanns

Félags- og húsnæðismálaráðherra er nú eini ráðherra ríkisstjórnarinnar án aðstoðarmanns eftir að fyrrverandi aðstoðarmaður hennar var ráðinn til forsætisráðherra. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún ráði nýjan. Meirihluti ráðherra er með tvo aðstoðarmenn.

Eygló Harðardóttir
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur ekki tekið ákvörðun hvort hún ætli að ráða sér nýjan aðstoð­ar­mann. Hún er nú eini ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem er án aðstoð­ar­manns eftir að Matth­ías Ims­land, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður henn­ar, var ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra á mánu­dag. Hann hafði verið Eygló til aðstoðar frá því í ágúst 2013. 

„Ég er bara að velta þessu fyrir mér," segir Eygló í sam­tali við Kjarn­ann. „Það er mikið af góðu fólki í ráðu­neyt­inu mér til aðstoðar og svo er mjög gott og mikið sam­starf á milli ráð­herra í rík­is­stjórn­inn­i.” 

Hún bendir á að mikil róter­ing hafi verið meðal aðstoð­ar­manna ráð­herra Fram­sóknar á kjör­tíma­bil­in­u. 

Auglýsing

Ágúst Bjarni Garð­ars­son hafði til að mynda unnið bæði fyrir Eygló og Gunnar Braga Sveins­son utan­rík­is­herra áður en hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður Sig­urðar Inga Jóhans­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mar­grét Gísla­dóttir var aðstoð­ar­maður Gunn­ars Braga en fór síðan til Sig­mundar Dav­íðs og Ing­veldur Sæmunds­dóttir starf­aði sem aðstoð­ar­maður Sig­urðar Inga en fór yfir til Sig­rúnar Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra þegar hún tók við emb­ætt­i. 

Stór mál eru framundan hjá Eygló á þing­inu, en hús­næð­is­frum­vörp hennar eru nú til umræðu í þing­nefnd og verða tekin fyrir á næstu vik­um. Eygló segir Matth­ías hafa verið að sinna ákveðnum verk­efnum fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið á meðan hann var hennar aðstoð­ar­mað­ur, meðal ann­ars varð­andi hús­næð­is­mál­in. En áfram sé mikið af góðu fólki í ráðu­neyt­inu henni til aðstoð­ar. 

„Í stóru ráðu­neyti gerir aldrei neinn eitt­hvað einn. Ég ætla að sjá til og meta vel hvort ég þurfi á aðstoð­ar­manni að halda áður en ég tek ákvörð­un,“ segir hún. 

Alls starfa 14 form­legir aðstoð­ar­menn fyrir hina níu ráð­herra rík­is­stjórn­ar­inn­ar.  

Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð og Sig­urður Ingi eru öll með tvö aðstoð­ar­menn hvert. 

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra, Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, Gunnar Bragi og Sig­rún eru með einn aðstoð­ar­mann hvert. 

Allir for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fjög­urra eru líka með einn aðstoð­ar­mann hvert á sínum snær­um.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None