Færri vilja koma heim

Ekki hafa færri Íslendingar snúið heim eftir búsetu í útlöndum síðan árið 2010. Bilið á milli aðfluttra og brottfluttra eykst stöðugt.

Spilling fólk mótmæli Landsbanki
Auglýsing

Bilið á milli fjölda þeirra Íslend­inga sem flytja frá land­inu og þeirra sem snúa aftur heim breikkar stöðugt. Ekki hafa færri flutt heim á ný und­an­farna 12 mán­uði síðan árið 2010, tveimur árum eftir efna­hags­hrun.

Tölur Hag­stof­unnar eru gefnar út á hverjum árs­fjórð­ungi und­an­farin ár og tölu­verðar sveiflur eru á milli árs­fjórð­unga. Yfir­leitt flytj­ast flestir út á haustin, þar sem fólk hefur nám erlendis á þeim árs­tíma, og svip­aðar sveiflur er að sjá þegar tölur eru skoð­aðar varð­andi þá sem flytja heim. 

Það er ekk­ert endi­lega rétt að tala alltaf um auk­inn flótta frá land­inu, þegar fleiri fari út heldur en komi heim, eins og fram kemur í Vís­bend­ingu, Viku­riti um við­skipti og efna­hags­mál. Fram að árinu 2013 fluttu um 4.000 manns burt á árinu, en fækk­aði um nærri þús­und fram að hausti sama ár. Á sama tíma fjölg­aði þeim sem sneru aftur heim. 

Auglýsing

Þá segir í Vís­bend­ingu að þessi þróun sé skilj­an­leg í ljósi þess að þarna voru fimm ár liðin frá efna­hags­hrun­inu og áhrif þess höfðu dvínað tals­vert. Þá er bent á að á þessum tíma var komið á jafn­vægi á milli brott­fluttra og aðfluttra Íslend­inga. 

Frá þeim tíma hefur þeim fjölgað sem flytja frá land­inu á sama tíma og þeim fækkar sem snúa aftur heim. Bilið fer breikk­andi á und­an­förnum tveimur árum. 

Skýr þróun

Kjarn­inn hefur greint frá þess­ari þróun und­an­farin miss­eri. Alls fluttu 3.210 íslenskir rík­is­borg­arar frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða um 1.130 fleiri en fluttu til þess. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­ara umfram heim­komna hafa ein­ungis fimm sinnum verið fleiri sam­kvæmt gagna­grunni Hag­stofu Íslands, sem nær til 1961. Það voru árin 1970, 1995, 2009, 2010 og 2011. Öll þau ár komu hins vegar í kjöl­far kreppu­ára, þ.e. ára þar sem sam­dráttur ríkti í íslensku hag­kerfi. Það er ekki raunin nú, þar sem hag­vöxtur hefur verið hér­lendis frá árinu 2011.

Tölu­verðar umræður hafa skap­ast um fram­setn­ingu þess­ara talna. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra gerði þær meðal ann­ars að umtals­efni í ára­mótapistli sínum í Morg­un­blað­inu og Hag­stofu­stjóri sendi einnig frá sér yfir­lýs­ing­u. 

VR hefur bent á að brott­flutn­ingur frá land­inu sé að aukast á sama tíma og aðflutn­ingur drag­ist sam­an, sem sé óvenju­legt í ljósi þess að almennt atvinnu­leysi fer minnk­andi og hag­vöxtur eykst. Fjöldi þeirra sem eru með háskóla­menntun og eru án vinnu hefur auk­ist um 275 pró­sent á síð­ustu 10 árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None