„Nenni unga fólkið ekki að kjósa sigra flokkar hins gamla Íslands“

Píratar
Auglýsing

Svanur Krist­jáns­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands sem stýrði kosn­inga­bar­átt­u P­írata í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum ásamt öðrum, segir engan í röð­u­m P­írata sem hann þekki ganga að kosn­inga­sigri flokks­ins sem vís­um­. ­Kosn­inga­þát­taka ungs fólks, þar sem stuðn­ingur við Pírata mælist mjög mik­ill, hafi verið mjög léleg í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­víkur 2014, þar sem ein­ungis 40 pró­sent ungs fólks undir 30 ára hafi kos­ið. Kosn­inga­sigrar vinnist ekki í sýnd­ar­ver­öld netheima heldur með ötulli vinnu margra í „kjöt­heim­um“. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Svanur birti á Face­book í gær. Þar seg­ir einnig: „Þegar upp er staðið skipta „li­kes" og pistlar á net­in­u (eins og þessi)fremur litlu. Atkvæðin í kjör­köss­unum skipta þar öllu máli. Nenn­i unga fólkið ekki að kjósa sigra flokkar hins gamla Íslands.“



Auglýsing

 

Yfir helm­ingur ungs fólks ætlar að kjósa Pírata

Píratar hafa nú mælst stærsti flokkur lands­ins, og með­ ­meira en 30 pró­sent fylgi, í meira en ár. Fylgið hefur verið að aukast und­an­farna mán­uði og í síð­ustu könn­unum hefur það mælst á bil­inu 35 til 42 ­pró­sent.

Svanur Kristjánsson.Í könnun MMR sem gerð var á tíma­bil­inu 12. til 20. jan­ú­ar 2016 var greint hvernig fylgi flokka skipt­ist milli ýmissa hópa, meðal ann­ar­s ald­urs­hópa. Þar koma fram að meira en helm­ing­ur ungs fólks, á aldr­inum 18 til 29 ára segj­ast myndu kjósa Pírata í næst­u Al­þing­is­kosn­ing­um, eða 54 pró­sent. 15 pró­sent aðspurðra í sama ald­urs­hópi ­segj­ast myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Fylgi ann­arra flokka meðal ungs fólks ­mæld­ist undir tíu pró­sent­um; Sam­fylk­ing er með fjögur pró­senta fylgi, Vinstri­hreyf­ing­in - grænt fram­boð með níu pró­sent, Fram­sókn­ar­flokkur með sex pró­sent, Björt fram­tíð fimm pró­sent og „ann­að” með sex pró­sent.

Fylgi Pírata er lang­mest í þessum ald­urs­flokki sem, líkt og Svanur bendir á í pistli sín­um, er ólík­leg­astur til að skila sér á kjör­stað.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None