Fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, hefur sent bréf til stjórnar Bankasýslu ríkisins, stílað á Lárus Blöndal formann stjórnar, vegna umræðu um sölu Landsbankans á hlut hans í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun. Landsbankinn seldi eins og kunnugt er 31,2 prósent hlut í Borgun í lokuðu ferli til valinna fjárfesta, og hefur sú sala dregið dilk á eftir sér, og leitt til umræðu um hvernig hið ríkið, sem er eigandi 98 prósent hlutafjár Landsbankans, eigi að haga málum þegar kemur að sölu ríkiseigna.
Í bréfinu segir Bjarni að komin sé upp „alvarleg“ staða þar sem Landsbankinn sé stærsta fjármálafyrirtæki landsins og verðmætasta félag íslenska ríkisins. Nauðsynlegt sé að hafa eigendastefnu í gildi sem byggi á gagnsæi og traustum ferlum, þegar kemur að eignasölu.
Bréfið í heild sinni er eftirfarandi:
„Eins og kunnugt er hefur á opinberum vettvangi farið fram umræða um sölu Landsbankans á hlut hans í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun. Samkvæmt upplýsingum og gögnum sem vísað hefur verið til í þeirri umræðu má ætla að það verð sem bankinn fékk fyrir eignarhlut sinn hafi verið mun lægra en eðlilegt getur talist. Jafnframt hefur verið gagnrýnt að við sölumeðferð bankans á hlutnum hafi ekki verið gætt að sjónarmiðum um gagnsæi og jafnræði. Er sú staða sem upp er komin alvarleg, en Landsbankinn er í senn stærsta fjármálafyrirtæki landsins og verðmætasta félag íslenska ríkisins.
Bankasýsla ríkisins „fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma“, eins og fram kemur í lögum um hana. Stofnuninni var komið á fót til að ríkið væri trúverðugur eigandi fjármálafyrirtækja og að tryggt væri að ekki yrðu höfð pólitísk afskipti af rekstri slíkra fyrirtækja.
Þótt aðkoma fjármála- og efnahagsráðherra að daglegum málefnum einstakra fjármálafyrirtækja í ríkiseigu sé verulega takmörkuð að lögum, er honum ætlað að setja félögunum eigendastefnu þar sem gerð er grein fyrir almennri stefnumörkun eiganda. Í samræmi við það hefur fjármálafyrirtækjum í eigu ríkisins verið sett sérstök eigendastefna sem gildir um öll þau félög sem Bankasýslan fer með eignarhlut í. Kjarni stefnunnar byggir á að umrædd fjármálafyrirtæki séu rekin með faglegum og gagnsæjum hætti þannig að almennt ríki traust á stjórn og starfsemi. Í eigendastefnunni er sérstaklega áskilið að fjármálafyrirtæki skuli koma sér upp innri verkferlum um lykilþætti í starfsemi sinni, þ.m.t. sölu eigna og að mikilvægt sé að slíkir ferlar séu skilvirkir og gagnsæi.
Að undanförnu hefur staðið yfir í fjármála- og efnahagsráðuneytinu endurskoðun á eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki og er þar m.a. gert ráð fyrir að hert verði á kröfum við sölu á eignum þeirra fjármálafyrirtækja sem stefnan nær til. Má í því sambandi vísa til þess að Alþingi hefur með lögum um opinber fjármál lögfest meginreglur um sölu eigna ríkisins þar sem segir að gæta skuli að jafnræði, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni við sölu eigna ríkisins, auk þess sem líta skuli til samkeppnissjónarmiða.
Bankasýsla ríkisins birti þann 8. janúar sl. stöðuskýrslu varðandi fyrirhugaða sölumeðferð á Landsbankanum í samræmi við heimild í fjárlögum. Í skýrslunni kemur fram að Bankasýslan stefni að því að setja fram tillögu til ráðherra á fyrsta fjórðungi þessa árs um sölu á allt að 28,2% hlut í Landsbankanum. Ákvörðun um næstu skref varðandi sölu eignarhluta í Landsbankanum verður fyrst tekin að fengnum tillögum Bankasýslunnar, en ljóst er að sú ákvörðun mun velta á fjölmörgum atriðum og mati á því hvernig heildarhagsmunum ríkisins er best fyrir komið. Það er mat ráðherra að umræða undanfarinna vikna vegna sölu Landsbankans á hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða bankann. Því sé nauðsynlegt áður en lengra er haldið í því ferli að hvaðeina er máli skiptir og varðar sölu Landsbankans á Borgun verði upplýst og málið afgreitt með þeim hætti að traust til bankans og stjórnenda hans verði tryggt. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis er sent afrit af bréfi þessu, sbr. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins, með síðari breytingum.“