Menntaðar konur fá ekki vinnu

Fjöldi atvinnulausra kvenna með háskólamenntun tvöfaldaðist á árunum 2012 til 2014. Fjöldi atvinnulausra karla með sömu menntun dróst saman á tímabilinu. Fleiri menntaðar konur eru atvinnulausar en ómenntaðar.

Hlutfall menntaðra, atvinnulausra kvenna er hærra heldur en hjá þeim sem ómenntaðar eru.
Hlutfall menntaðra, atvinnulausra kvenna er hærra heldur en hjá þeim sem ómenntaðar eru.
Auglýsing

Atvinnu­lausar konur með háskóla­menntun eru fleiri en þær sem ein­ungis eru með grunn­skóla­próf. Fjöldi atvinnu­lausra, háskóla­mennt­aðra kvenna tvö­fald­að­ist á árunum 2012 til 2014. Hlut­fall háskóla­mennt­aðra kvenna sem voru atvinnu­lausar var 15 pró­sent árið 2012 og fór upp í 36 pró­sent árið 2014. Á á sama tíma fækk­aði þeim mikið sem eru án vinnu og ein­göngu með grunn­skóla­próf, úr 58 pró­sent í 34,5. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum Félags­vísum sem birtir voru í gær. Félags­vísar eru gefnir út af Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og Hag­stofu Íslands á hverju ári til að varpa ljósi á þróun og breyt­ingar í sam­fé­lag­inu með því að birta á einum stað tölur og upp­lýs­ingar um til­tekna hópa sam­fé­lags­ins.  

1.550 atvinnu­lausar og mennt­aðar

Séu fjölda­töl­urnar skoð­aðar kemur í ljós að fjöldi atvinnu­lausra kvenna með háskóla­menntun er 1.550 og hafði þeim fjölgað úr 750 frá árinu 2012. Fjöldi atvinnu­lausra kvenna ein­ungis með grunn­skóla­menntun dróst hins vegar mikið sam­an, úr 2.850 árið 2012 í 1.500 árið 2014. 

Auglýsing

Atvinnu­leysi mest meðal ómennt­aðra karla

Sé hlufall atvinnu­lausra karla með háskóla­menntun skoðað fyrir sama tíma­bil kemur önnur þróun í ljós. Hlut­fall atvinnu­lausra karla með háskóla­menntun var 14,6 pró­sent árið 2012 og lækk­aði um rúmt pró­sentu­stig árið 2014, þá 13,5 pró­sent. 

Lang­flestir atvinnu­lausir karlar eru ein­ungis með grunn­skóla­mennt­un, eða 52,5 pró­sent. 34 pró­sent þeirra karla sem eru atvinnu­lausir og eru með starfs- eða fram­halds­skóla­menntun og eins og áður seg­ir, 13,5 pró­sent með háskóla­mennt­un. 

Aðra sögu er hins vegar að segja með kon­urn­ar. Fleiri atvinnu­lausar konur eru með háskóla­menntun en ein­ungis grunn­skóla­mennt­un. Hlut­fall kvenna án vinnu sem hafa ein­ungis klárað grunn­skóla er 34,5 pró­sent, en 35,6 pró­sent meðal þeirra sem eru með háskóla­próf. Hlut­fall atvinnu­lausra sem lokið hafa starfs- eða fram­halds­skóla­menntun er 53 pró­sent meðal karla og 35 pró­sent meðal kvenna. 

Fjór­falt fleiri konur heima­vinn­andi

Nær fjór­falt fleiri konur en karlar eru skráðar heima­vinn­andi og því utan atvinnu­mark­að­ar, ell­efu pró­sent kvenna og þrjú pró­sent karla. 

VR sendi frá sér skýrslu í byrjun árs þar sem fram kom að atvinnu­lausum með háskóla­próf hafi auk­ist um 275 pró­sent á síð­ustu 10 árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None