Sprenging í fjölda heimilisofbeldismála á höfuðborgarsvæðinu

Fjöldi heimilisofbeldismála sem kom til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu meira en tvöfaldaðist á milli áranna 2014 til 2015. Lögreglan sinnti 293 heimilisofbeldismálum 2014 en 651 í fyrra. Þetta gerir um tvö mál á dag.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti að meðaltali tveimur heimilisofbeldismálum á dag í fyrra.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti að meðaltali tveimur heimilisofbeldismálum á dag í fyrra.
Auglýsing

Fjöldi heim­il­is­of­beld­is­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur meira en tvö­fald­ast á milli áranna 2014 og 2015. Margt bendir til þess að fjöldi til­kynn­inga verði svip­aður eða enn fleiri í ár. 

Árið 2014 barst lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 293 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi. Árið 2015 voru þær meira tvö­falt fleiri, eða 651. Þetta gerir um tvö mál á dag. Fyrstu tvo mán­uði árs­ins 2016 hafa 111 til­kynn­ingar borist. Þær voru 262 árið 2013 og hefur fjöld­inn því auk­ist um 150 pró­sent milli tveggja ára. 

Ekki hægt á ákæra fyrir heim­il­is­of­beldi

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ekki hægt að gefa upp fjölda mála sem ákært hefur verið í, þar sem heim­il­is­of­beldi er í dag sem slíkt ekki brot á hegn­ing­ar­lög­um. Hægt er að ákæra fyrir brot eins og lík­ams­árás, eign­ar­spjöll, hót­anir eða þess hátt­ar, en ekki er hægt að flokka ákæruna undir flokk­inn „heim­il­is­of­beldi” heldur ein­ungis ein­stök brot. 

Auglýsing

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dóttir tók við starfi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júlí 2014. Hún starf­aði áður sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og náði þar miklum árangri í heim­il­is­of­beld­is­málum með sér­stöku átaki sem bar heitið „Að halda glugg­anum opn­um“. Þegar Sig­ríður Björk tók við starfi lög­reglu­stjóra í Reykja­vík und­ir­strik­aði hún að sér­stök áhersla yrði lögð á mál er varða kyn­bundið ofbeldi; kyn­ferð­is­brot, man­sal og heim­il­is­of­beld­i. 



Þverpóli­tískt frum­varp

Nú liggur fyrir frum­varp á Alþingi um breyt­ingar á almennum hegn­ing­ar­lögum þar sem lagt er til að heim­il­is­of­beldi verði gert að sér­stöku hegn­ing­ar­laga­broti. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu mun það breyta skrán­ingu mála innan emb­ætt­anna, nái frum­varpið í gegn. Þá verði í fram­hald­inu hægt að sjá feril mála með ein­fald­ari hætti. Flutn­ings­menn frum­varps­ins eru sex og koma úr öllum flokk­um. Það eru þau Vil­hjálmur Árna­son, Sjálf­stæð­is­flokki, Karl Garð­ar­son, Fram­sókn­ar­flokki, Páll Valur Björns­son, Bjartri fram­tíð, Guð­bjartur Hann­es­son, Sam­fylk­ingu, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Píröt­um, og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, Vinstri græn­um. 

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að með því sé lögð sér­stök áhersla á alvar­leika brota sem talist geta til heim­il­is­of­beld­is. Til­gangur frum­varps­ins er að draga úr tíðni heim­il­is­of­beld­is, vernda þolendur og um leið taka á vanda ger­enda. Skil­yrði þess að brot falli undir ákvæðið er að brot bein­ist gegn maka, fyrr­ver­andi maka, barni eða öðrum sem er nákom­inn ger­anda og tengsl þykja hafa aukið á gróf­leika verkn­að­ar­ins.  Í Dan­mörku og Finn­landi hafa sér­stök refsi­á­kvæði sem taka til heim­il­is­of­beldis ekki verið lög­fest en aftur á móti hefur það verið gert í Sví­þjóð og Nor­egi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None