Kristinn Dagur Gissurarson, sem situr í stjórn RÚV fyrir hönd Framsóknarflokksins, stendur við ummæli sín um dagskrárstefnu og -fólk RÚV sem hann lét falla í viðtali við Útvarp Sögu þann 3. mars síðastliðinn. Málflutningur hans í viðtalinu hafi verið hófstilltur. Hann segir að fáeinir fjölmiðlamenn hafi kosið að ata sig auri með dylgjum og illmælgi í sinn garð. Það sé undrunarefni og segi meira um þá en sig. Kristinn Dagur segist enn fremur ekki vera nein puntdúkka sem sitji í stjórn RÚV til að þiggja stjórnarlaun, heldur beri honum að hafa hag RÚV að leiðarljósi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu sem Kristinn Dagur sendi frá sér í dag.
Í viðtalinu við Útvarp Sögu kom Kristinn Dagur því á framfæri að honum hugnaðist ekki að „klámsýning“ eins og atriði Reykjavíkurdætra í sjónvarpsþætti Gísla Marteins Baldurssonar á föstudagskvöld, að atriðið ætti ekki heima á ríkisfjölmiðli, að það væri með eindæmum að það hefði verið sýnt og að Gísli Marteinn hefði farið „út af sporinu“ með því að gera það. Þá sagði Kristinn Dagur það skrýtið að fjölmiðlamenn opinberuðu skoðanir sínar á pólitískum málefnum samhliða því að þeir störfuðu við fjölmiðlun. Að hans mati ættu starfsmenn sem „eru að vinna á fjölmiðli, tala nú ekki ríkisfjölmiðli[...]að gæta sín aðeins“.
Kristinn Dagur sagði einnig að stjórn RÚV gæti ekki dregið Gísla Martein til ábyrgðar fyrir að sýna tónlistaratriði með ögrandi boðskap, eða fyrir að hafa pólitískar skoðanir, en að hún gæti náttúrulega „rekið útvarpsstjórann“.
Yfirlýsingu hans er hægt að lesa í heild sinni hér að neðan:
„Vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum um málefni RUV þar sem tilefnið er viðtal við mig á Útvarpi Sögu, þann 3. mars, og í því sambandi vitnað í fésbókarfærslu, 4. mars, Sigmars Guðmundsonar, dagskrárgerðarmanns hjá RUV, óska ég að eftirfarandi komi fram og verði birt.
Ég, undirritaður, er ekki einhver puntudúkka sem sit í stjórn RUV til þess eins að þiggja stjórnarlaun sem nema um 80 þúsundum króna á mánuði, fyrir skatta. Mér ber að hafa hag RUV að leiðarljósi og vinna eftir lögum um Ríkisútvarpið ohf. Það að ég hafi á hófstilltan hátt rætt í þessu viðtali ýmislegt sem ég teldi ekki samrýmast dagskrárstefnu Ríkisútvarpsins og gildum þess, - hafi orðið til þess að fáeinir „fjölmiðlamenn“ kjósa að ata mig auri og vera með dylgjur og illmælgi í minn garð er undrunarefni og segir meira um þá en mig. Tek skýrt fram að þetta á ekki við um allar fréttir af málinu. Hvað varðar fésbókarfærslu Sigmars Guðmundsonar, dagskrárgerðarmanns hjá RUV, hef ég svarað henni á þeim hinum sama vettvangi.
En til þess að enginn velkist í vafa um afstöðu mína til RUV læt ég hér fylgja með niðurlag greinar sem ég ritaði síðastliðið haust og birtist í Fréttablaðinu 12. nóvember 2015. Ég stend við hvert orð sem þar er að finna.
„RÚV er í þágu okkar allra. Framsóknarflokkurinn hefur ætíð staðið vörð um þessa menningarstofnun sem hefur fylgt okkur lengi og meginþorri þjóðarinnar vill hafa við hlið sér. Mikill mannauður og ómetanleg menningarverðmæti eru fólgin í RÚV. Þekking, reynsla og hæfileikar starfsmanna RÚV er gnægtarbrunnur sem þjóðin nýtur góðs af. Undirritaður mun sem stoltur framsóknarmaður og stjórnarmaður í RÚV beita sér, hér eftir sem hingað til, fyrir öflugum og hlutlægum fjölmiðli í almannaeigu.”
Kristinn Dagur Gissurarson, stjórnarmaður í RUV ohf.