Bloomberg býður sig ekki fram til forseta Bandaríkjanna

michael bloomberg
Auglýsing

Mich­ael Bloomberg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í New York, ætlar ekki að bjóða sig fram til for­seta Banda­ríkj­anna. Hann greindi frá þessu í grein á Bloomberg View nú í kvöld. 

Bloomberg hafði íhugað að bjóða sig fram sem óháð­ur, þriðji fram­bjóð­andi. Í grein­inni í kvöld segir hann að þegar hann hafi skoðað töl­fræð­ina hafi það verið ljóst að ef hann tæki slag­inn myndi hann ekki vinna. 

Jafn­vel þótt hann gæti unnið í mörgum ríkjum myndi hann ekki fá þau 270 atkvæði úr kjör­manna­ráði sem til þyrfti. Með þrjá fram­bjóð­endur væri ólík­legt að nokkur fram­bjóð­andi fengi meiri­hluta og þá færu völdin til að velja for­seta úr höndum almenn­ings og til banda­ríska þings­ins. Jafn­vel þótt hann fengi flest atkvæði almenn­ings og kjör­manna­ráðs væri mjög ólík­legt að hann bæri sigur úr být­um, „vegna þess að flestir þing­menn myndu kjósa fram­bjóð­anda síns flokks. Flokks­hestar í þing­inu - ekki banda­ríska þjóðin eða kjör­manna­ráðið - myndu ákveða næsta for­seta.“ 

Auglýsing

Þess vegna, meðan repúblikanar eru í meiri­hluta í báðum deildum þings­ins, væru miklar líkur á því að fram­boð hans myndi leiða til kjörs Don­ald Trump eða Ted Cruz. „Það er ekki áhætta sem ég get tekið með góðri sam­visku.“ 

Bloomberg fer mjög hörðum orðum um for­seta­fram­bjóð­end­urna, einna helst Don­ald Trump og Ted Cruz, í grein sinni. Trump hafi háð þá mestu lýð­skrums- og sundr­ung­ar­kosn­inga­bar­áttu sem sést hafi, og hafi alið á for­dómum og ótta fólks. „Abra­ham Lincoln, faðir Repúblikana­flokks­ins, höfð­aði til „betri engla“ okk­ar. Trump höfðar til okkar verstu hvata.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None