Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur í orkumálum sem hefur haldið úti Orkublogginu um langt skeið, segir í nýrri færslu að bankastjóri í íslenska bankakerfinu hefði haft samband við sig og varað sig við því að Norðurál væri að undirbúa herferð gegn hans málflutningi. Fyrirtækið væri að reyna að ráða almannatengla til verksins og bankastjórinn bætti við: „Þeir ætla sér að eyðileggja þig“.
Ketill hefur fjallað ötullega um kosti lagningar sæstrengs og það lága orkuverð sem erlend stóriðjufyrirtæki greiða fyrir orku á Íslandi. Hann hefur háð marga ritdeiluna við forsvarsmenn þeirra stóriðjufyrirtækja á Íslandi, meðal annars þá sem stýra málum hjá Norðuráli, sem rekur álver á Grundartanga og hefur stefnt að byggingu álvers í Helguvík.
Í nýjustu færslu sinni, sem jafnframt er kveðjufærsla á blogginu, segir Ketill frá því að Norðurál hafi reynt ýmislegt til að hafa áhrif á hann í gegnum tíðina. Meðal annars hafi Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, sent honum tölvupóst um á árinu 2013 til að reyna að fá hann til að vinna fyrir sig verkefni, í kjölfar þess að Ketill hafði gagnrýnt orkusölu til álvera í fréttaskýringaþætti á RÚV. „Allt í einu vildi álfyrirtækið fá mig til að útvega því upplýsingar. M.ö.o. að vinna fyrir sig verkefni," segir Ketill í færslunni. Hægt er að lesa umræddan tölvupóst hér.
Síðan segir hann: „Það var athyglisvert að um mitt ár 2014 hafði samband við mig þaulreyndur framkvæmdastjóri hjá einu af stærstu íslensku fjármálafyrirtækjunum. Og sagði mér að forstjóri Norðuráls væri að hringja í stjórnendur fyrirtækisins og kvarta yfir samstarfi þeirra við mig. Þetta þótti mér auðvitað merkilegt, enda nokkuð undarlegt að fyrirtæki úti í bæ sé að skipta sér af einstaklingum með þessum hætti.
Það var svo í júní á liðnu ári, 2015, að einn af bankastjórunum í íslenska bankakerfinu hafði samband við mig. Og varaði mig við því að Norðurál væri að undirbúa herferð gegn mínum málflutningi. Og væri að reyna að ráða almannatengla til verksins. Og viðkomandi bætti við þessum skemmtilegu orðum: „Þeir ætla sér að eyðileggja þig“.
Þetta þótti mér líka fróðlegt að heyra. Því með þessu fékk ég í reynd staðfest að ég var að birta upplýsingar sem stóriðjan vill ekki að almenningur viti af. Hér er líka vert að minna á blekkingaleikinn sem átti sér stað árið 2009 og sýnir vel hversu sterkur áróður stóriðjunnar er. En nú var sem sagt orðið augljóst að ég var orðinn upplýsingabrunnur sem stóriðjan vildi kæfa."
Ruglukollar spretta fram með áróðursskrif
Ketill segir svo að miðað við „ruglukollanna" sem sprottið hefðu fram í kjölfarið með áróðursskrif fyrir stóriðju og gegn sæstreng virðist Norðuráli hafa gengið hálf illa að fá fagfólk til verksins. Þar á hann við hóp sem Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ræddi einnig um á fordæmalausum blaðamannafundi sem hann hélt í desember síðastliðnum þar sem kom skýrt fram í máli hans að hann teldi Norðurál, og eigendur þess, vera að beita öllum mögulegum meðulum til að halda orkuverði til sín sem lægstu. Auk þess sagði Hörður: „Það er hins vegar alveg rétt að það hafa komið upp hópar manna sem hafa áður ekki tengst orkuumræðu inn í umræðuna. Þeir hafa verið kynntir í viðtölum sem ráðgjafar Norðuráls.“
Þessi hópur sem Hörður talar um er leiddur af manni sem heitir Viðar Garðarsson, viðskiptafræðingi og markaðsráðgjafa, sem blandað hefur sér af miklu afli í umræður um orkumál að undanförnu. Viðar er á meðal þeirra sem heldur úti vettvangnum „Auðlindirnar okkar“ á Facebook, vefmiðlinum Veggnum og skrifar pistla á vef mbl.is. Í skrifum Viðars og annarra á þessum síðum er talað fyrir lægra orkuverði til stóriðju, lengri orkusölusamningum og gegn lagningu sæstrengs til Bretlands. Þá var Viðar til viðtals í fréttum Stöðvar 2 í byrjun desember 2015. Í kynningu þeirrar fréttar kom fram að Viðar hafi unnið fyrir Norðurál. Í þeirri frétt sagði Viðar að hótun Rio Tinto um að loka álverinu í Straumsvík í tengslum við vinnudeilu sem þar hefur geisað hafi verið sett fram vegna þungs reksturs, sem megi rekja til of hás orkuverðs.
Hörður sagði þennan hóp og skrif þeirra ekki trufla Landsvirkjun mikið og að samningsviðræður við Norðurál stæðu yfir þrátt þessa stöðu. Þær væru alls ekki í uppnámi. „En það er tekist á.“
Yfirburðarstaða stóriðju gagnvart einstaklingi
Ketill segir í færslu sinni í dag að það væri þó þannig að það virðist þrífast mikil undirgefni gagnvart Norðuráli og öðrum stóriðjufyrirtækjum á Íslandi. Hann hafi því ákveðið að draga sig í hlé frá umfjöllun um þau, og hætta skrifum á Orkublogginu, enda séu þessi útlendu stóriðjufyrirtæki „með mikla veltu og kaupa hér margvíslega þjónustu. Og það eitt og sér skapar þeim völd. Hvað viðvíkur mér, þá er þarna um að ræða þvílíka yfirburðarstöðu að einstaklingur getur ekki til lengdar verið í því hlutverki að upplýsa um hið sanna um viðskiptaumhverfi og starfsaðferðir þessara fyrirtækja."
Þess í stað hyggst hann nú alfarið einbeita sér að alþjóðlegri ráðgjöf á sviði orkumála.