Íslendingar versla meira í Vínbúðinni eftir því sem þeir eldast. Samkvæmt tölum frá Meniga, sem byggja á neysluhegðun um 50 þúsund Íslendinga, eyðir eldra fólk, 66 og yfir, um 11.700 krónum í Vínbúðinni á mánuði að meðaltali. Enginn aldurshópur eyðir eins miklu og neysla eykst eftir því sem fólk verður eldra.
Yngsti hópurinn, 16 til 25 ára, eyðir að meðaltali 5.000 krónum á mánuði í Vínbúðinni. En hafa ber í huga að þar telja ekki þeir sem eru undir tvítugu vegna aldurstakmarksins. Þetta er einn af fáum vöruflokkum þar sem útgjöld aukast jafnt og þétt með aldrinum, en sú er líka raunin með áskriftir og fjarskipti, eins og Kjarninn hefur fjallað um.
Úrvinnsla Meniga byggir á tölfræðilegum samantektum sem aldrei eru persónugreinanlegar. Tölurnar byggja á fjárhagslegum 16 milljón færslum 50 þúsund notenda sem veltu um 84 milljörðum króna árið 2015. Meniga greinir ekki eftir heimilum, heldur meðaltalsnoktun einstaklinga.