Eimskip og Samskip sektuð um háar upphæðir vegna samráðs í Hollandi

eimskip
Auglýsing

Eim­skip og Sam­skip hafa ásamt tveimur öðrum fyr­ir­tækj­um, Kloos­beheer og Van Bon, verið sektuð af hol­lenskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum vegna alvar­legs ólög­mæts sam­ráðs á frysti­geymslu­mark­aði í Holland­i. Sekt­irnar eru á bil­inu 63 millj­ónir til 1,3 millj­arðar íslenskra króna en ekki er greint frá því í frétta­til­kynn­ingu hol­lenska sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hversu háar sektir eru lagðar á hvert fyr­ir­tæki um sig. 

Um er að ræða þrjú mál þess­ara fjög­urra fyr­ir­tækja. Á árunum 2006 til 2009 höfðu þau með sér sam­ráð um verð, skiptu með sér við­kvæmum sam­keppn­is­upp­lýs­ingum og deildu við­skipta­vinum með hverju öðru. Með þessu skekktu þau sam­keppn­is­markað í Hollandi. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Kloos­beheer hafi við­ur­kennt mis­tök sín og unnið með sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Vegna þess hafi sekt fyr­ir­tæk­is­ins verið lækkuð um 10 pró­sent. 

Tölvu­póstar leiða í ljós ýmiss konar sam­ráð, sam­kvæmt því sem kemur fram hjá hol­lenska eft­ir­lit­inu. Þannig hafi við­kvæmar upp­lýs­ingar oft verið sendar á milli, eins og verð á geymslu á mat, hversu hátt hlut­fall geymslna þeirra væri í notkun og svo fram­veg­is. Fyr­ir­tækin sam­ræmdu einnig til­boð til við­skipta­vina svo að það var alltaf ljóst hvert þeirra myndi fá við­skipt­in. 

Auglýsing

Fimm stjórn­endur í þessum fyr­ir­tækjum voru einnig sektað­ir, en hæsta sektin nam rúmum 20 millj­ónum íslenskra króna. 

Ólafur William Hand, upp­lýs­inga­full­trúi Eim­skips, segir við Kjarn­ann að félagið hafi tekið frá 900 þús­und evrur eftir að það var upp­lýst um að til stæði að sekta það. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi nemur sektin þess­ari upp­hæð, eða rúm­lega 126 millj­ónum króna. Ólafur segir að fyr­ir­tækið hafi hafið und­ir­bún­ing að áfrýj­un. 

Sömu sögu er að segja af Sam­skip­um, en lög­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa áfrýjað nið­ur­stöðu sam­keppn­is­yf­ir­valda og und­ir­búa aðgerðir á hendur Kloos­beheer, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Félagið seg­ist ekki vera aðili að mál­inu, heldur bein­ist það gegn Kloos­beheer og eig­endum þess, sem Sam­skip hafi keypt frysti­geymslu af 2005 en selt aftur 2009. Sam­kvæmt lögum sé ekki hægt að inn­heimta hærri sektir en 10% veltu þeirra, og sam­keppn­is­yf­ir­völd krefj­ist þess að Sam­skip borgi mis­mun­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None