Björgólfur: Fíllinn í herberginu er peningastefnan í landinu

Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði í erindi sínu óásættanlegt ef fólk og fyrirtæki reyndu að komast hjá skattgreiðslum.

Björgólfur Jóhannsson
Auglýsing

„Fíll­inn í her­berg­inu er oft og iðu­lega notað um stórt og mikið vanda­mál sem allir vita af en eng­inn vill ræða eða horfast í augu við. Að mati Sam­taka atvinnu­lífs­ins er fíll­inn í her­berg­inu þögnin um pen­inga­stefnu Íslands.“



Sagði Björgólfur Jóhanns­son, for­maður stjórnar Sam­taka atvinnu­lífs­ins, í upp­hafi erindis síns á aðal­fundi Sam­taka atvinnu­lífs­ins, í dag. Þar hélt Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, einnig erindi og fjall­aði meðal ann­ars ítar­lega um pen­inga­stefn­una og hvernig hún gæti ver­ið, eftir að höft hafa verið los­uð. Skýr­lega kom fram hjá hon­um, að krónan væri ekki að fara fljót frjáls mark­aði aft­ur.

Heið­ar­legt fólk í rekstri

Björgólfur fór vítt og breitt yfir svið­ið, og sagði meðal ann­ars að yfir­gnæf­andi meiri­hluta allra þeirra sem væru að stunda atvinnu­rekst­ur, gera það af heið­ar­leika og í takt við lög og regl­ur. Það væri enda for­senda þess að sam­fé­lagið gæti gengið eins og til væri ætl­ast. 

Þá sagði hann skatta­skjól með öllu óásætt­an­leg, það er ef menn væru að koma sér undan því að greiða skatta á sömu for­sendum og aðr­ir. „Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa fylgst með starfi Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar í París til að draga úr mögu­leikum þess að reka félög í skatta­skjól­um. Smám saman hefur verið að mynd­ast alþjóð­leg sam­staða um að hvergi verði staðir til að fela sig í þessu skyni. Það er vel.

Auglýsing

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti fyr­ir­tækja og stjórn­enda þeirra stunda rekstur sinn af kost­gæfni, hóf­semd, þraut­seigju og heið­ar­leika eins og almennt tíðkast í dag­legu lífi fólks. Ítrekað hefur komið fram í könn­unum að flestir eru jákvæðir í garð íslenskra fyr­ir­tækja og að næstum allir eru jákvæðir í garð síns vinnu­veit­anda.

Við viljum að á Íslandi sé rekið arð­bært og ábyrgt atvinnu­líf sem bætir lífs­kjör allra. Í kjöl­far hruns­ins beittu Sam­tök atvinnu­lífs­ins sér fyrir end­ur­skoðun reglna um stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja. Sam­tökin hafa end­ur­skoðað verk­lag sitt við til­nefn­ingu fólks í stjórnir sjóða og stofn­ana og sett við­mið um hvernig þessar stjórnir skulu starfa. Sam­tökin hafa tekið ein­arða afstöðu gegn svartri atvinnu­starf­semi og lagt sitt af mörkum til að berj­ast gegn henni. Það er óásætt­an­legt ef fyr­ir­tæki og stjórn­endur ganga á svig við lög og reglur og greiða ekki til sam­fé­lags­ins til jafns við aðra. Það má aldrei líðast,“ sagði Björgólf­ur.

Ábyrgðin er mikil

Hann lagði enn fremur áherslu á að nú hvíldi mikil ábyrgð á stjórn­mála­mönn­um, og tryggja far­sæla nið­ur­stöðu við stjórn lands­ins. „Það hvílir mikil ábyrgð á stjórn­mála­mönnum lands­ins ekki síst á tímum póli­tískrar óvissu að tryggja far­sæld við stjórn lands­ins, stöð­ug­leika í efna­hags­málum og að leita frekar sam­stöðu en ágrein­ings um helstu mál. Það er þá sem reynir á að stjórn­mála­menn sýni ábyrgð og láti ekki eigin hag eða flokks­hags­muni ganga framar þjóð­ar­hag.

Í ritsafni Dav­íðs Stef­áns­son­ar, frá Fagraskógi Mælt mál er að finna grein sem nefn­ist Hismið og kjarn­inn þar sem skáldið kemst svo að orð­i: „Und­ir­rót heil­brigðs fjár­hags er að vekja hjá fólk­inu vilj­ann til sjálfs­bjarg­ar, vilj­ann til hollra fram­kvæmda, vilja til að neyta og njóta sinna eigin krafta, and­legra og lík­am­legra.“ Skáldið lagði áherslu á að menn ræktu sinn innri mann og sagði: „Þar má rækta sam­úð, skiln­ing og kær­leika, sem auka víð­sýni og vit, stækka mann­inn sjálfan og ver­öld hans. Því fleiri sem þetta gera, því traust­ari verður sá grund­völl­ur, sem þjóð­fé­lagið er reist á, lög þess gerð af meiri spekt og um leið betur búið að æsk­unni sem landið erf­ir.“

Undir þetta skal tek­ið,“ sagði Björgólfur að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None