Forsætisráðherra fullyrðir að boðað verði til kosninga í haust

Forsætisráðherra staðfestir að kosið verði til Alþingis haustið 2016. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins var í vikunni ekki viss um að svo verði. 70 prósent kjósenda vilja kosningar 2016 samkvæmt Gallupkönnun.

Sigurður Ingi Jóhannsson tók við embætti forsætisráðherra fyrir rúmri viku síðan. Hann fullyrðir að kosið verði í haust.
Sigurður Ingi Jóhannsson tók við embætti forsætisráðherra fyrir rúmri viku síðan. Hann fullyrðir að kosið verði í haust.
Auglýsing

Boðað verður til Alþing­is­kosn­inga í haust. Þetta full­yrðir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans til Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra, um hvort hann geti stað­fest að kosið verði til Alþingis í haust, segir Bene­dikt Sig­urð­ar­son, aðstoð­ar­maður hans:  

„Eins og fram hefur komið mun verða boðað til kosn­inga í haust. Dag­setn­ing hefur ekki verið ákveð­in." 

Sig­urður Ingi átti fund með stjórn­ar­and­stöð­unni í vik­unni þar sem hann full­viss­aði þau um að kosn­ingum yrði flýtt til hausts­ins. 

Auglýsing

Mik­ill meiri­hluti vill kosn­ingar 2016

Rúm­lega 70 pró­sent kjós­enda vilja að kosið verði í ár. Þetta sýna nið­ur­stöður nýrrar Gallup­könn­unar sem RÚV birti í gær. Um var að ræða net­könnun sem gerð var 7. til 13. apríl þar sem spurt var: „Hvenær vilt þú að næstu kosn­ingar til Alþingis fari fram?“

37 pró­sent vilja að kosið verði innan tveggja mán­aða, apríl til júní, 20 pró­sent vilja kjósa eftir tvo til fjóra mán­uði, júní til ágúst, og 15 pró­sent vilja kosn­ingar eftir fimm til átta mán­uði, sept­em­ber til des­em­ber. Þetta þýðir að rúm­lega 70 pró­sent vilja kosn­ingar á þessu ári, stærsti hlut­inn í vor eða í sum­ar. 

Ásmundur ekki viss með haust­kosn­ingar

Ásmundur Einar Daða­son, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vildi ekki full­yrða í sam­tali við Kjarn­ann í vik­unni hvort kosið verði í haust. Varð­andi vinn­una sem framundan er tengda kosn­inga­bar­áttu og öðrum tækni­legum atriðum um kosn­ing­arnar sagði Ásmund­ur:  

„Ef kjör­­dagur verður annar en ráð­­gert var í apríl 2017, taka stofn­­anir flokks­ins við. Ég hef engar áhyggjur af öðru en að Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn sé til­­­bú­inn í kosn­­ing­­ar, hvort sem þær verða í haust eða á næsta ári.” 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði á Alþingi í gær „stefnt væri að því að kjósa í haust." Hann hefur þó full­yrt að núver­andi kjör­tíma­bil verði stytt um eitt lög­gjafa­þing. Ekki komi til greina að sam­þykkja fjár­lög næsta árs á þessu þing­i. 

„En það skiptir máli að hlut­irnir gangi eðli­lega fyrir sig hér á þing­inu og að það sé ein­hver fram­gangur í þeim verk­efnum sem rík­is­stjórnin hefur beitt sér fyr­ir,“ sagði Bjarni varð­andi haust­kosn­ing­ar. 

45 dagar frá þing­rofi til kosn­inga

Til að boða til kosn­inga áður en kjör­tíma­bili lýkur þarf að rjúfa þing. Þing­menn halda umboði sínu til kjör­dags, þó að þing hafi verið rof­ið. En sam­kvæmt stjórn­ar­skránni þarf að boða til kosn­inga innan 45 daga frá því að þing­rof hefur verið til­kynnt. En þetta á ein­ungis við ef þing er rofið við sér­stakar aðstæð­ur, ekki þegar reglu­bundnu fjög­urra ára kjör­tíma­bili lýk­ur. Rík hefð hefur skap­ast fyrir því að kjósa á laug­ar­degi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None