Fiskafli íslenskra skipa í mars 2016 voru tæp 132 þúsund tonn, sem er 31% minni afli en í mars í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Botnfiskafli dróst saman um 8 prósent, úr 53,9 þúsund tonnum í 49,3 þúsund tonn, í mars. Uppsjávarafli minnkaði úr tæpum 136 þúsund tonnum í rúm 79 þúsund tonn, sem er 42 prósent aflasamdráttur. Á tólf mánaða tímabili hefur aflamagn minnkað um 109 þúsund tonn á milli ára, sem er mest megnis vegna minni uppsjávarafla. Aflinn í mars metinn á föstu verði var 12,6 prósent minni en í mars 2015.
Eins og sjá má á myndinni hér að neðan, sem Hagstofa Íslands tók saman, þá hefur botnfiskaflinn aukist um fjögur prósent milli ára, þar af þorskafli um þrjú prósent. Samdrátturinn er hins vegar mikill í mörgum uppsjávartegundum, meðal annars loðnu.