Sigurjón Magnús Egilsson fjölmiðlamaður og stjórnandi Sprengisands á Bylgjunni, hefur verið ráðinn ritstjóri allra miðla Hringbrautar. Hann mun stjórna miðlum Hringbrautar, í sjónvarpi, útvarpi og á netinu.
„Auk þess að verða ritstjóri allra miðla Hringbrautar mun Sigurjón taka virkan þátt í dagskrá útvarps og sjónvarps Hringbrautar og eins mun hann skrifa á vefinn hringbraut.is,“ segir í tilkynningu frá Hringbraut um málið. Með ráðningu Sigurjóns til Hringbrautar verði dagskrá og efnistök útvarpsins aukin og mótuð.
Í tilkynningunni frá Hringbraut segir að framundan sé meiri þörf fyrir umræðu en oftast, ef ekki meiri en nokkru sinni fyrr. Hringbraut muni láta til sín taka þar.
Sigurjón Magnús hefur lengi stýrt þættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Hann heldur líka úti fréttavefnum Miðjan.is.