Ólafur Ólafsson, aðaleigandi Samskipa, segir að upplýsingar um félög í hans eigu séu opinber gögn, þar á meðal félög sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag. Ólafur, sem nú afplánar fangelsisdóm vegna Al Thani málsins, sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Morgunblaðsins í dag.
Í Morgunblaðinu kemur fram að Ólafur var með tæpa fjóra milljarða króna í eignastýringu í Lúxemborg í gegnum félagið KIMI S.a.r.l. árið 2013. Félagið hefur fjárfest í hollensku félagi og tveimur spænskum fyrirtækjum í sjávarútvegi á undanförnum árum. Í ársreikningum Kima kemur fram að félagið hafi keypt íslenskar krónur „á hagstæðu gengi“ í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans.
„Árið 2013 lagði KIMI 350 þúsund evrur til fjárfestingar á Íslandi. Megin þorri þeirra fjármuna fóru til uppbyggingar á eldhúsi og stækkunar Landnámssetursins í Borgarnesi sem við höfum stutt við frá upphafi. Það var liður í að styðja við fjölbreytt menningarlíf í Borgarnesi og stuðla að uppbyggingu í samfélaginu,“ segir Ólafur í yfirlýsingunni.
Þar segist hann einnig hafa verið búsettur erlendis frá árinu 2005, fyrst í Englandi en svo í Sviss frá 2009. Langstærstur hluti starfsemi hans sé erlendis. „Ég kem að rekstri fjölda fyrirtækja erlendis sem veita hátt í 2000 manns atvinnu. Þar má nefna nefna félögin KIMI SARL í Lúxemborg og Neptune Holding BV í Hollandi sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.
KIMI hefur meðal annars staðið að hjálparstarfi með uppbyggingu á fiskvinnslu og löndunarstöðvum í Sierra Leone í Afríku en um er að ræða umfangsmesta og metnaðarfyllsta þróunarstarf í sjávarútvegi í landinu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Aurora velgjörðarsjóð sem konan mín og ég höfum starfrækt frá árinu 2007,“ skrifar Ólafur.
Í gegnum félagið Neptune Holding hafi hann fjárfest í sjávarútvegi utan Íslands. „Nefna má fyrirtækið Asia Seafood, sem er með móðurfélag á Íslandi og kaupir sjávarafurðir af útgerðum við Kyrrahafið, til vinnslu og sölu á markaði í Asíu og Bandaríkjunum. Fyrirtækið veltir árlega yfir 200 milljónum Bandaríkjadala (tæpum 29 milljörðum króna). Neptune Holding hefur einnig fjárfest í Lumar Seafood á Spáni sem rekur sérhæfða verksmiðju sem framleiðir hágæða fiskrétti og túnfisk til sölu í Evrópu. Þá á Neptune einnig línuveiðiskipið Ana Barral sem hefur stundað veiðar á Indlandshafi.“