Vátryggingafélag Íslands, VÍS. var í gær dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til greiða Lífsverk lífeyrissjóði rúmlega 852 milljónir, auk vaxta og dráttarvaxta sem nema samtals um 416 milljónum króna. VÍS er því gert að greiða um kr. 1.268 milljónir króna. Um er að ræða kröfu Lífsverks í ábyrgðartryggingu stjórnar og stjórnenda, þar sem VÍS er vátryggjandi.
Í tilkynningu VÍS til kauphallar, segir að VÍS endurtryggi sig gagnvart tjónum sem þessum að stærstum hluta. „Eins og fram kemur í skráningarlýsingu gerir endurtryggingastefna félagsins ráð fyrir að ekkert stakt tjón geti lækkað gjaldþol þess um meira en þrjú prósent. Fjárhæðin sem fallið getur í hlut VÍS í þessu máli er innan marka stefnunnar og hefur að stórum hluta verið færð í tjónaskuld félagsins frá árinu 2013,“ segir í tilkynningunni.
Málið snýst um tvær fjárfestingar sem þáverandi stjórn og stjórnendur lífeyrissjóðsins tóku ákvarðanir um, í mars og september 2008, í svonefndum lánshæfistengdum skuldabréfum (e. credit linked notes), sem gefin voru út af svissneska bankanum UBS AG, Jersey Branch, en fjárfestingar þessar voru gerðar fyrir milligöngu Landsbanka Íslands.
Dómurinn hefur ekki enn verið birtur á vef dómstólanna, domstolar.is.
Lífsverk byggði málið meðal annars á því að ákvarðanir fyrrum stjórnenda sjóðsins og umræddar fjárfestingar samkvæmt þeim hafi verið ólögmætar þar sem þær hafi stangast á við þær fjárfestingarheimildir sem lífeyrissjóðir njóta samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Lánshæfistengdu skuldabréfin hafi verið afleiðugerningar, en ekki skuldabréf, sem óheimilt hafi verið að eiga viðskipti með.
VÍS hefur þegar tekið ákvörðun um að áfrýja dómi héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar, að því er segir í tilkynningu félagsins.