Hæstiréttur hækkar sekt Valitor í 500 milljónir

Kredit kort Borgun
Auglýsing

Hæsti­réttur Íslands kvað í dag upp dóm þar sem kom­ist er að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með aðgerðum sem beindust að keppi­nautum félags­ins á mark­aði fyrir færslu­hirð­ingu. Var sekt fyr­ir­tæk­is­ins vegna sam­keppn­islaga­brota hækkuð úr 400 millj­ónum í 500 millj­ón­ir.

Jafn­framt hafi Valitor brotið gegn tveimur skil­yrðum sem félagið hafði skuld­bundið sig til að hlíta með sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í fyrra máli. Hins vegar telur dóm­ur­inn að hækka beri þær sektir sem­fyr­ir­tækið var dæmt til að greiða í hér­aðs­dómi. Er sektin þannig hækkuð úr 400 millj­ónum í 500 millj­ónir króna eins og kveðið var á um í úrlausnum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála.

„Til rök­stuðn­ings hækkun sekta byggir Hæsti­réttur m.a. á því að brot fyr­ir­tæk­is­ins hafi snert allan almenn­ing í land­inu, auk þess sem vísað er til þess að fjár­hags­legur styrk­leiki Valitors og ávinn­ingur af starf­sem­inni á brota­tíma­bil­inu hafi verið veru­leg­ur. Jafn­framt er litið til þess að stjórn­valds­sekt í fyrra máli hafi ekki skilað þeim árangri að Valitor léti af sam­keppn­is­brot­um. Er þetta hæsta sekt sem lögð hefur verið á íslenskt fyr­ir­tæki vegna mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöð­u,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Auglýsing

Sam­kvæmt dóm­inum ber Valitor að greiða Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu 4 millj­ónir króna í máls­kostn­að.

Til­drög dóms­ins eru þau að í apríl 2013 sektaði Sam­keppn­is­eft­ir­litið Valitor hf. um 500 millj­ónir króna fyrir mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu og brot á skil­yrðum fyrri ákvörð­unar eft­ir­lits­ins. Var félagið talið hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppi­nautum félags­ins á mark­aði fyrir færslu­hirð­ingu. Hátt­semi Valitors fólst í því að fyr­ir­tækið verð­lagði þjón­ustu sína í færslu­hirð­ingu vegna debet­korta undir breyti­legum kostn­aði. Með þess­ari und­ir­verð­lagn­ingu var félagið lík­legra til að fá samn­inga við sölu­að­ila um færslu­hirð­ingu vegna kredit­korta sem talin er arð­sam­ari þjón­usta. Var umfang þess­arar und­ir­verð­lagn­ingar veru­legt. Fól hátt­semin einnig í sér brot á 54. gr. EES-­samn­ings­ins. 

Sam­keppn­is­eft­ir­litið komst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor hefði brotið gegn tveimur skil­yrðum sem félagið hafði skuld­bundið sig til að hlíta með sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sem birt var í ákvörðun nr. 4/2008. Í brot­inu fólst m.a. að Valitor not­aði trún­að­ar­upp­lýs­ingar um sölu­að­ila í við­skiptum við keppi­nauta sína í færslu­hirð­ingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslu­korta hér á land­i. 

Valitor kærði ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála sem stað­festi hana í heild sinni í októ­ber 2013. Var það mat nefnd­ar­innar að mis­notkun Valitors á mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni og brot á fyrr­greindu skil­yrði í eldri ákvörðun hafi verið alvar­leg. Valitor skaut úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála til Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur. Komst hér­aðs­dómur að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor hefði af ásetn­ingi framið alvar­leg brot á sam­keppn­is­lög­um. Hafi brotin að auki verið ítrekuð að hluta til. Hér­aðs­dómur taldi hins vegar að brot Valitors hefðu tekið til skemmra tíma­bils en lagt var til grund­vallar hjá áfrýj­un­ar­nefnd. Sökum þessa var sekt lækkuð og hún ákveðin 400 millj­ónir króna.

Valitor og Sam­keppn­is­eft­ir­litið stefndu mál­inu fyrir Hæsta­rétt Íslands, sem nú hefur kveðið upp sinn dóm, eins og áður grein­ir.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None