Sígaunahöfðinginn fær að vera áfram í Danmörku

Gimi Levakovic.
Gimi Levakovic.
Auglýsing

 

Gimi Levakovic, höf­uð­paur einnar alræmd­ustu glæpa­fjöl­skyld­u D­an­merk­ur, mun fá að vera áfram í Dan­mörku. Hæsti­réttur lands­ins komst að þeirri nið­ur­stöðu í dag. Levakovic hafði áður verið gert að yfir­gefa landið í kjöl­far þess að hann myndi ljúka fimmtán mán­aða fang­els­is­dómi sem hann hlaut í ágúst í fyrra. Levakovic, sem oft er kall­aður „sígauna­stjór­inn“ (e. gypsy boss og d. sigøjner­­bossen) hlaut dóm­inn í  í hér­­aðs­­dómi í Næst­ved fyrir líf­láts­hót­­­an­ir og vopna­­burð. 

Hann varð einn umtal­að­­asti maður Dan­­merkur í jan­úar 2015 eftir að danska sjón­­varps­­stöðin TV2 sýndi tvo sjón­­varps­þætti um Levakovic ­fjöl­­skyld­una. Þætt­irnir voru gerðir með sam­­þykki fjöl­­skyld­unnar og þar eru löng við­­töl við Gimi Levakovic og Jura bróð­­ur­­son hans sem nú afplánar fimm ára dóm og verður vísað úr landi.

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði ítar­­lega um ­fjöl­­skyld­una í frétta­­skýr­ingu í jan­úar 2015.

Grát­klökkur

Levakovic komst svo aft­ur á for­síður danskra blaða í októ­ber 2015 þegar Eystri-Lands­réttur snéri við dómi hér­aðs­dóms sem hafði vísað Levakovic úr landi. Lands­rétt­ur­inn þyngdi fang­els­is­dóminn­ um þrjá mán­uði en snéri við brott­vís­un­ar­dóm­in­um. Dóm­ur­inn vakti hörð við­brögð í Dan­mörku. 

Danskir fjöl­miðlar sögðu á þeim tíma að Gimi Levakovic, sem venju­­lega er kok­hraust­ur, hafi verið mjög stress­aður í dóm­salnum og svit­inn perlað af hon­­um. „Þeg­ar hann heyrði að sér yrði ekki vísað úr landi grét hann eins og smá­­barn,“ sagð­i eitt dönsku blað­anna. Sak­­sókn­­ari sagði strax að dóms­­upp­­kvaðn­­ingu lok­inn­i að hann myndi freista þess að fá mál­inu skotið til Hæsta­réttar og von­að­ist til að það tæk­ist.

Það tók­st og nú hefur Hæsti­réttur stað­fest þá nið­ur­stöðu og sagt að brott­vísun Levakovic, ­sem er króat­ískur rík­is­borg­ari, sé í and­stöðu við mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu. Hér­aðs­dóm­ur­inn yfir Levakovic var dómur númer 27 sem hann hlýtur í Dan­mörku. Á Face­book-­síðu sinni í dag fagnar hann ákvörð­un­inni og seg­ist grát­klökk­ur.

Varð lands­þekkt eftir sjón­varps­þátt

Levakovic-­fjöl­­skyld­an varð lands­þekkt í Dan­mörku í jan­úar 2015 þegar sjón­­varps­­stöðin TV2 sýndi tvo þætti um hana sem byggð­ust að miklu leyti á við­­tölum við ætt­­­ar­höf­uð­ið Gimi. Fjöl­skyldan flutti frá Kró­a­­tíu til Dan­­merkur árið 1972 og hefur alla ­tíð síðan verið á fram­­færi danskra skatt­­borg­­ara og hefur þegið jafn­­­gildi 1700 millj­­óna íslenskra króna sér til fram­­færslu. Fjöl­­skyld­an, ­sem býr á Ama­­ger, hefur stækkað á þessum 43 árum og telur nú fleiri en 40. Eng­inn úr fjöl­­skyld­unni hefur stundað laun­aða vinnu. Fram­­færslu­líf­eyrir hins op­in­bera hefur þó ekki hrokkið til og fjöl­­skyld­an, einkum karl­­arn­ir, virð­ast hafa drýgt tekj­­urnar með ránum og grip­­deild­um, sem þeir hafa stund­um hlotið dóma fyr­ir.

Ætt­­­ar­höf­uðið Gimi Levakovic hefur í við­­töl­u­m ­sagt að fjöl­­skylda sín standi saman í blíðu og stríðu. Afskipti lög­­regl­unn­ar hafa stundum orðið til að trufla heim­il­is­frið­inn. Sjálfur hefur Gimi, sem er 46 ára, setið inni í tæp sjö ár sam­tals og bræður hans og bræðra­­synir hafa margoft setið inni, um lengri eða skemmri tíma. Sumum þeirra hefur oftar en einu sinni verið vísað úr landi en þeir hafa jafn­­harðan snúið aftur til Dan­merk­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None