LÍN frumvarp Illuga búið að vera í mánuð á milli ráðuneyta

Frumvarp Illuga Gunnarssonar um breytingar á lögum um LÍN er enn í kostnaðarmati á milli fjármálaráðuneytisins og menntamálaráðuneytisins. Til stóð að klára frumvarpið fyrir meira en tveimur vikum. LÍN skilaði milljarðaafgangi á síðasta rekstrarári.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur boðað töluverðar breytingar á Lánasóði íslenskra námsmanna.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur boðað töluverðar breytingar á Lánasóði íslenskra námsmanna.
Auglýsing

Frum­varp til laga um breyt­ingar á Lána­sjóði íslenskra náms­manna (LÍN) hefur verið í kostn­að­ar­mati og vinnslu á milli fjár­mála- og mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins í tæpa tvo mánði. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu stóð til að afgreiða frum­varpið í síð­asta mán­uði, en ekk­ert hefur bólað á því. Frum­varpið felur í sér heild­ar­end­ur­skoðun á lög­gjöf um LÍN og þess vegna tekur svo langan tíma að ljúka yfir­ferð, segir upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við Kjarn­ann. 

Afgangur í árs­reikn­ingi

LÍN var rek­inn með sjö millj­arða króna afgangi á síð­asta rekstr­ar­ári, er fram kemur í Frétta­blað­inu í dag, en Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri LÍN, segir þar að sjóð­ur­inn sé  fé­lags­legur jöfn­un­ar­sjóður og ekki eiga að vera rek­inn með hagn­aði. Ef frá er dregið fram­lag rík­is­sjóðs til sjóðs­ins sé tap á rekstr­in­um.

„Í árs­reikn­ingi LÍN kemur fram að halli er á rekstri sjóðs­ins sem nemur 1,3 millj­örðum króna án rík­is­fram­lags í sam­an­burði við níu millj­arða króna halla á árinu 2014,“ segir Hrafn­hildur Ásta. „Hér er vert að hafa í huga að ríkið styrkir náms­menn á náms­lánum að með­al­tali um 47 pró­sent af útlánum sjóðs­ins á hverju ári,“ er haft eftir Höllu í Frétta­blað­in­u. 

Auglýsing

Náms­menn erlendis gagn­rýna breyt­ingar

Úthlut­un­ar­reglum til náms­manna erlendis hefur verið breytt, sem fela í sumum til­vikum í sér allt að 20 pró­senta lægri fram­færslu frá sjóðnum til þeirra. Þessar breyt­ingar hafa þó ekki með frum­varpið að ger­a. 

Hjör­dís Jóns­dótt­ir, full­trúi Sam­taka íslenskra náms­manna erlendis (SÍNE) í stjórn LÍN, segir í Frétta­blað­inu að á sama tíma og sjóð­ur­inn skilar afgangi sé verið að skera úthlut­anir nið­ur. 

„Við hjá SÍNE höfum mót­mælt því harð­lega að verið sé að skerða fram­lag til nema erlend­is. Til að mynda skrif­aði ég ekki undir nýjar úthlut­un­ar­reglur og okkur finnst við ekki hafa fengið nægan stuðn­ing frá stúd­entum hér á landi því full­trúar stúd­enta sam­þykktu úthlut­un­ar­regl­urn­ar,“ segir Hjör­dís. „Við teljum sjóð­inn vel geta staðið undir öfl­ugum útlánum til náms­manna erlend­is.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None